Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 2021, Side 41

Sveitarstjórnarmál - 2021, Side 41
SKIPULAG HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS Störf að sveitarstjórnarmálum á höfuðborgarsvæðinu eru að sumu leyti frábrugðin því sem ég átti að venjast sem bæjarstjóri sveitarfélags á landsbyggðinni, málaflokkarnir og málefnin vissulega af svipuðum toga en áskoranirnar að einhverju leyti mismunandi. Á höfuðborgarsvæðinu erum við að upplifa mikla fjölgun íbúa árum saman og sjáum ekki fram á að henni linni á næstu árum og áratugum. Skipulag og áætlanir sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu taka mið af því, segir Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH), í samtali við Sveitarstjórnarmál. Páll hefur verið framkvæmdastjóri SSH síðan í apríl 2019 en gegndi þar áður um langt skeið starfi bæjarstjóra og fjármálastjóra í Fjarðabyggð og sinnti auk þess ráðgjöf við sveitarfélög, meðal annars í sameiningarferli. Hann er viðskiptafræðingur með MBA frá háskólanum í Stirling í Skotlandi. Hann var fjármálastjóri Fjarðabyggðar á árunum 2004-2008, síðan útibússtjóri Íslandsbanka á Austurlandi í tvö ár og bæjarstjóri Fjarðabyggðar 2010- 2018. Áður en hann tók við starfi framkvæmdastjóra SSH starfaði hann um hríð sem sjálfstæður ráðgjafi í samstarfi við RR-ráðgjöf og veitti þá meðal annars ráðgjöf vegna sameiningar sveitarfélaga sem nú mynda Múlaþing. Sameining eflir fámennari byggðir „Það var virkilega ánægjulegt að starfa að sveitarstjórnarmálum í Fjarðabyggð og ég hef góðar minningar þaðan. Þessi ár sem ég var þar einkenndust af mikilli uppbyggingu og enn frekari sameiningu við nágrannasveitarfélög. Tilkoma álvers Alcoa-Fjarðaáls var gríðarlega öflug vítamínsprauta fyrir svæðið og í sveitarfélaginu eru þrjú mjög öflug sjávarútvegsfyrirtæki; Síldarvinnslan í Neskaupstað, Eskja á Eskifirði og Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði. Þessari starfsemi allri og tengdri starfsemi hefur fylgt mikil uppbygging. Það var mjög krefjandi og ánægjulegt að taka þátt í því ferli og ég bý að dýrmætri þekkingu og reynslu af því. Þá tók ég þátt í undirbúningi þess að taka á móti uppbyggingu Laxeldis og lagði mitt lóð á vogarskálarnar þegar kom að skipulagsmálum fjarða sem er mikilvægt mál fyrir þau sveitarfélög sem liggja að sjó á fjörðum. Að sama skapi var áhugavert að taka þátt í ferlinu þegar Fáskrúðsfjörður, Fáskrúðsfjarðarhreppur og Stöðvarfjörður, ásamt Mjóafirði, sameinuðust Fjarðabyggð og loks Breiðdalshreppur. Ég upplifði það sem bæjarstjóri að við sameiningu myndast aukinn slagkraftur. Einingin stækkar Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu Höfuðborgarsvæðið og landsbyggðin eiga samleið Eftir Garðar H. Guðjónsson 41 Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.