Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 2021, Síða 45

Sveitarstjórnarmál - 2021, Síða 45
SKIPULAG HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 45 A D B E C A D B E C 1 2 3 4 5 6 7 1 2 3 4 5 6 7 Stuðlum að sjálfbæru samfélagi Við bjóðum sveitarfélögum víðtæka þjónustu við að fylgja eftir markmiðum sínum í skipulags-, öryggis-, og umhverfi smálum þar sem sjálfbærni er órjúfanlegur hluti af ráðgjöfi nni. Allt frá umhverfi svöktun og stefnumótun um sjálfbærni, til umferðargreininga og umferðaröryggisáætlana. fjögurra ára þróunaráætlana er lykilatriði í framfylgd svæðisskipulags, að sögn Páls. Með þróunaráætlun er lögð áhersla á að samræma áætlanir sveitarfélaganna um uppbyggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis og samgönguframkvæmdir, auk annarra aðgerða til að ná fram markmiðum svæðisskipulags um þróun höfuðborgarsvæðisins til ársins 2040. „Í þróunaráætlun er sett fram ný mannfjöldaspá sem gerir ráð fyrir að íbúum fjölgi um á bilinu 6.000 til 16.200 manns frá ársbyrjun 2020 til ársloka 2024. Miðað við mannfjöldaspána verður þörf fyrir um 4.000-7.200 íbúðir frá ársbyrjun 2021 til ársloka 2024 eða á bilinu 1.000 til 1.800 íbúðir á ári. Þessar tölur taka einnig mið af áætluðum íbúðaskorti sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun mat um 2.200 íbúðir við lok árs 2019. Greining þróunaráætlunar dregur fram að áform sveitarfélaga muni mæta fjölgun íbúa næstu fjögur árin með tilliti til mannfjöldaspár. Áætlanir sveitarfélaganna gera ráð fyrir að um 8.000 íbúðir verði fullbúnar á þessu sama tímabili, eða rétt undir 2.000 íbúðir á ári. Það er um 31 prósent fleiri íbúðir en voru fullbúnar á síðustu fjórum árum (2016-2019) og 57 prósent yfir langtímauppbyggingu íbúða á ári (1999- 2019). Þess má geta að áætlað er að um 66 prósent nýrra íbúða og 64 prósent nýs atvinnuhúsnæðis sem rís á tímabilinu verði innan áhrifasvæðis hágæða almenningssamgangna. Að öllu saman teknu vil ég því halda því fram að framtíðin sé björt á höfuðborgarsvæðinu og mikilvægt að við stöndum öll sem eitt vel að framtíðaruppbyggingu þess og verkefnum,“ segir Páll. Breyttar ferðavenjur fólks með þessari blöndu af bílaumferð, Borgarlínu, öflugum almenningssamgöngum í hverfunum með tengingu við hana og umferð gangandi og hjólandi er forsenda þess að bjóða upp á samkeppnishæft höfuðborgarsvæði og enn betri lífsgæði fyrir íbúana.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.