Sveitarstjórnarmál - 2021, Page 46
samstarfsvettvangs sveitarfélaganna um
loftslagsmál og heimsmarkmiðin. Hlutverk
samstarfsvettvangsins er að:
1. Miðla þekkingu og reynslu á milli
sveitarfélaga
2. Greina og grípa tækifæri til samstarfs
3. Kanna tækifæri til sameiginlegrar
þróunar á aðferðum til að mæla
árangur
4. Leita leiða til að greiða fyrir aðgengi
sveitarfélaga að fjármagni
5. Tryggja aðkomu sveitarfélaga að
setningu, framfylgd og framþróun
reglna og áætlana á þessu sviði.
Meirihluti sveitarfélaga á aðild að
samstarfsvettvanginum og sambandið
hefur staðið fyrir reglulegum fræðslu- og
samráðsfundum á milli þeirra. Sambandið
hóf einnig vinnu að þróun sameiginlegra
HM-mælikvarða fyrir sveitarfélög með
stuðningi sérfræðinga Kópavogsbæjar og
Hagstofunnar.
Samstarf ríkis og sveitarfélaga
Samstarf á milli ríkis og sveitarfélaga um
innleiðingu markmiðanna hefur jafnframt
þróast í jákvæða átt. Sambandið hefur
frá upphafi átt fulltrúa í verkefnisstjórn
forsætisráðuneytisins um markmiðin
og í lok árs 2020 náðist sá mikilvægi
áfangi að forsætisráðuneytið setti á
fót sérstakan samstarfsvettvang ríkis
SVEITARSTJÓRNARMÁL
46
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og íslensk
sveitarfélög
Meirihluti sveitarfélaga
á aðild að samstarfs-
vettvangnum og
sambandið hefur staðið
fyrir reglulegum fræðslu-
og samráðsfundum á milli
þeirra.
Heimsmarkmið um sjálfbæra þróun
voru samþykkt á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna árið 2015 sem alþjóðleg
áætlun til ársins 2030 til að takast á
við hnattrænar áskoranir í efnahags-,
Anna Guðrún Björnsdóttir
Sviðsstjóri þróunar- og alþjóðasviðs
sambandsins
samfélags- og umhverfismálum. Þau tóku
við af Aldamótamarkmiðum Sameinuðu
þjóðanna en hafa breiðari skírskotun
þar sem þau beinast að öllum ríkjum
heims en ekki eingöngu vanþróaðri
ríkjum. Íslenska ríkið hefur skuldbundið
sig gagnvart Sameinuðu þjóðunum til
að vinna að framgangi markmiðanna.
Óumdeilt er að Ísland getur ekki fullnægt
þessum alþjóðlegu skuldbindingum nema
með þátttöku sveitarstjórnarstigsins.
Þannig telur OECD að sveitarfélög þurfi
að koma að innleiðingu á 65% af 169
undirmarkmiðum áætlunarinnar.
Íslensk sveitarfélög hafa frá upphafi
sýnt áhuga á að vinna að innleiðingu
markmiðanna. Samband íslenskra
sveitarfélaga hefur leitast við að styðja
þau í þeirri vinnu. Árið 2019 hafði
sambandið frumkvæði að stofnun
Eva Magnúsdóttir, ráðgjafi hjá Podium, og Karl Björnsson, framkvæmdastjóri sambandsins,
undirrituðu samkomulag um stuðningsverkefnið að morgni 23. september sl.