Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 2021, Side 47

Sveitarstjórnarmál - 2021, Side 47
og sveitarfélaga um heimsmarkmiðin í samræmi við ábendingu OECD í tengslum við þátttöku Kópavogsbæjar í OECD heimsmarkmiðaverkefni. Samstarfsvettvangurinn hefur nú umsjón með vinnu að sameiginlegum HM-mælikvörðum fyrir sveitarfélög og sá um útgáfu á Verkfærakistu um heimsmarkmiðin fyrir sveitarfélög í maí sl. Sambandið hefur nú fengið styrk frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga í sex mánaða átaksverkefni til að styðja við innleiðingu heimsmarkmiðanna í íslenskum sveitarfélögum. Markmiðið verkefnisins er að: • fjölga sveitarfélögum sem hafa náð árangri í innleiðingu heimsmarkmiðanna, • yfirfæra þekkingu á milli sveitarfélaga, • móta farvegi fyrir innleiðingu heimsmarkmiðanna í Gerum góðar heimtur betri Árangur Við kappkostum að skapa verðmæti, ekki bara fyrir kröfuhafa, heldur líka fyrir greið- endur, samfélagið og komandi kynslóðir. Sími 520 40 40inkasso.is þátttökusveitarfélögunum sem hægt er að halda áfram að byggja á eftir sveitarstjórnarkosningar 2022, • 20% sveitarfélaga hafi fyrir sveitarstjórnarkosningar 2022 hafið undirbúning að setningu aðgerðaráætlunar um innleiðingu heimsmarkmiðanna og að 10% til viðbótar hafi sett sér slíka áætlun og byrjað að hrinda henni í framkvæmd. Umsóknarfrestur til 15. október Sveitarfélög hafa frest til 15. október nk. til að sækja um þátttöku. Unnið verður með sveitarfélögum í tveimur hópum eftir því hvar þau eru stödd gagnvart markmiðunum. Þau sem eru komin nokkuð áleiðis í vinnu að innleiðingu markmiðanna munu fá fræðslu og stuðning ráðgjafa til að setja sér fullmótaða aðgerðaráætlun. Hinn hópurinn mun fá fræðslu og stuðning ráðgjafa til að móta grunn fyrir áframhaldandi innleiðingu eftir sveitarstjórnarkosningar næsta vor. Reynsla þeirra sem eru komin lengra verður nýtt fyrir þau sem eru komin skemur á veg. Hvert sveitarfélag þarf að tilefna tvo fulltrúa, annars vegar kjörinn fulltrúa og hins vegar starfsmann til að bera ábyrgð á innleiðingarvinnunni innan sveitarfélags og taka þátt í sameiginlegum vinnufundum. Samstaða innan sveitarstjórnar um þátttöku er mjög mikilvæg til að auka líkur á framhaldi vinnunnar eftir sveitarstjórnarkosningar 2022. Eva Magnúsdóttir ráðgjafi hjá Podium, sem hefur m.a. verið ráðgjafi Flóahrepps og Skaftárhrepps í innleiðingu heimsmarkmiðanna, mun hafa umsjón með fræðslunni og veita faglegan stuðning. HEIMSMARKMIÐ SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.