Sveitarstjórnarmál - 2021, Page 48
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Sveitarfélög sýna stafrænni umbreytingu mikinn
metnað
48
Eftir Garðar H. Guðjónsson
Fjóla María Ágústsdóttir, leiðtogi stafræns umbreytingateymis og breytingastjóri
Það er mikið ánægjuefni að sveitarfélögin
í landinu skuli hafa tekið höndum saman
um að vinna að stafrænni umbreytingu á
sveitarstjórnarstiginu til að deila þekkingu
og lausnum, þróa saman lausnir, hýsa
þær og viðhalda og standa saman að
útboðum. Þannig stefnum við hraðbyri
að því að auka verulega þjónustu við
íbúa og auka hagkvæmni í rekstri
sveitarfélaga. Það er mikill metnaður í
sveitarfélögum sem snýr að stafrænni
þróun þeirra og ég tel að ákvarðanir um
samstarf og uppbyggingu í því sambandi
séu gríðarlegt gæfuspor, segir Fjóla
María Ágústsdóttir, leiðtogi stafræns
umbreytingarteymis og breytingastjóri
Sambands íslenskra sveitarfélaga, í
samtali við Sveitarstjórnarmál.
Þegar blaðamaður ræddi við Fjólu Maríu
voru hún og samstarfsfólk hennar á
fullu að undirbúa stafræna ráðstefnu
Sambandsins um stafræna þróun sem
haldin var í lok september. Stafræn þróun
er komin á dagskrá.
Sambandið og sveitarfélögin hafa stigið
stór skref í átt að stafrænni umbreytingu
síðan Fjóla María var ráðin til starfa í
október 2019. Samstarf sveitarfélaga
í stafrænni umbreytingu var formfest
í febrúar á þessu ári og starfa nú á
þess vegum stafrænt ráð sveitarfélaga
og faghópur stafrænna leiðtoga
sveitarfélaga.
Stefnumarkandi ráð
Stafræna ráðið er skipað bæjarstjórum
og kjörnum fulltrúum tilnefndum af
landshlutasamtökum sveitarfélaga, auk
fulltrúa Reykjavíkurborgar. Hlutverk
þess er að vera stefnumarkandi og
stuðla að faglegu ákvörðunarferli um
samstarfsverkefni sveitarfélaga og
eftirfylgni þeirra. Ráðið lagði til að bætt
yrði við tveimur starfsmönnum til að
vinna að þessum málum og voru þeir
ráðnir í júní síðastliðnum. Fjóla María
og nýju verkefnastjórarnir mynda
nú stafrænt umbreytingarteymi sem
hefur það hlutverk að vinna, í nánu
samstarfi við stafrænt ráð sveitarfélaga,
að framkvæmd miðlægs samstarfs
sveitarfélaga til að auðvelda þeim að
verða virkir þátttakendur í stafrænni
Stafrænt teymi Sambands íslenskra sveitarfélaga: Hrund Valgeirsdóttir, Fjóla María Ágústsdóttir og Andri Örn Víðisson.