Sveitarstjórnarmál - 2021, Page 49
STAFRÆNT TEYMI SAMBANDSINS
49
framþróun og nýta nútímatækni til að
bæta þjónustu og samskipti við íbúa
Faghópurinn veitir stafræna ráðinu
faglega ráðgjöf og setur fram tillögur til
þess um stafræn samstarfstækifæri.
Þjónustuvefur fyrir sveitarfélögin í
stafrænni umbreytingu (stafraen.
sveitarfelog.is) er í hönnun en á honum
er í mótun svæði sem kallast mun
lausnatorg þar sem sveitarfélögin geta
deilt og tekið stafrænar lausnir og kóða
þeirra, svo sem sorphirðudagatal,
Miðlægt áhættumat
hugbúnaðarlausna fyrir
skóla er annað verkefni
í vinnslu sem mun veita
skólum betri yfirsýn yfir
lausnir sem þeir geta
nýtt sér og hugsanlega
persónuverndaráhættu
vegna þeirra.
reiknivélar fyrir ýmis gjöld sveitarfélaga
og fleira.
Þá gerðist Sambandið aðili að stefnu um
stafræna þjónustu hins opinbera í sumar
þar sem helstu markmið og áherslur
eru betri opinber þjónusta, nútímalegra
starfsumhverfi, öruggari innviðir og aukin
samkeppnishæfni.
Samvinnuverkefni og samstarf við
Stafrænt Ísland
Fjóla María segir fyrsta þróunarverkefnið,
sem er umsókn um fjárhagsaðstoð
sveitarfélaga og tæknihögun fyrir það,
komið vel á veg.
„Verkefnið eru unnið í samstarfi við
Stafrænt Ísland og fyrirtækin Kolibri
og Anders og mun ryðja brautina fyrir
fleiri þjónustulausnir sveitarfélaga inni
á vefnum Ísland.is. Gert er ráð fyrir að
nýta þá tæknilegu innviði sem ríkið hefur
byggt upp og leggja um leið grunn að
tæknihögun fyrir sveitarfélögin, sem getur
nýst í sameiginlegum framtíðarverkefnum
sveitarfélaga og Stafræns Íslands.
Tengingar við gagnaskrár ríkisins, svo
sem Þjóðskrár og Skattsins í gegnum
Strauminn (e. X-road) eru í vinnslu
og munu nýtast í framtíðarþróun á
umsóknarferlum sveitarfélaga.
Einnig er unnið að leiðum til að
gera stafræn innkaup sveitarfélaga
hagkvæmari með sameiginlegum
leiðbeiningum, gæðaviðmiðum og
rammasamningum.
Miðlægt áhættumat hugbúnaðarlausna
fyrir skóla er annað verkefni í vinnslu sem
mun veita skólum betri yfirsýn yfir lausnir
sem þeir geta nýtt sér og hugsanlega
persónuverndaráhættu vegna þeirra.
Þetta verkefni mun komast í gagnið í lok
september í gegnum vefinn stafraen.
sveitarfelog.is,“ segir Fjóla María.
Önnur verkefni snúa að hennar sögn að
stuðningi vegna tilraunaverkefna sem
nokkur sveitarfélög hafa farið í saman
og munu, ef reynslan er góð, geta nýst
sveitarfélögum almennt.
Ekki fækkun starfsfólks
Fjóla María leggur áherslu á að stafræn
tækni býður upp á mörg tækifæri fyrir
hagkvæmari rekstur sveitarfélaga sem og
betri ákvarðanatöku og þjónustu við íbúa.
„Sveitarfélög landsins verða að taka stór
skref núna til að verða ekki eftir í hraðri
tækniþróun sem nú á sér stað. Stafræna
umbreytingarteymið kannaði í sumar
áhuga sveitarfélaga á 64 stafrænum
verkefnatillögum en niðurstaða