Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 2021, Page 51

Sveitarstjórnarmál - 2021, Page 51
STAFRÆNT TEYMI SAMBANDSINS 51 Sveitarfélög landsins verða að taka stór skref núna til að verða ekki eftir í hraðri tækniþróun sem nú á sér stað. við þá. Ég var bara ein að starfa að þessum málum þegar ég var ráðin fyrir tveimur árum og fólk ekki byrjað að ræða samstarf en nú finn ég algjörlega að sveitarfélögin þurfa og vilja samstarf. En stafræn þróun og tæknilausnir kosta fjármagn í upphafi enda er verið að byggja upp nýja nálgun og það þarf að gera ráð fyrir fjármagni í þessa vegferð í fjárhagsáætlunum sveitarfélaga. Nú hefur Reykjavík heldur betur tekið hugrakkar ákvarðanir og setur mikið fjármagn í stafræna þróun enda er hún framtíðin, en önnur sveitarfélög sem þjónusta tvo þriðju landsmanna verða að leggja fjármagn í þessa þróun og þá er bæði mikilvægt að fjármagna samvinnuverkefni og aðra stafræna þróun sveitarfélaga,“ segir Fjóla María. Í lok október 2020 var stofnað Stafrænt ráð sveitarfélaganna. Landshlutasamtök sveitarfélaga tilnefndu fulltrúa landshlutanna í ráðið og auk þess eiga Reykjavíkurborg og Kópavogsbær fulltrúa. Stafrænt ráð styður við stefnumótun og forgangsröðun um sameiginlega stafræna þróun sveitarfélaga. Í ráðinu sitja: • Elías Pétursson fyrir SSNE, • Eydís Ásbjörnsdóttir fyrir SSA, • Sævar Freyr Þráinsson fyrir SSV, formaður • Álfhildur Leifsdóttir fyrir SSNV, • Óskar J. Sandholt fyrir Reykjavíkurborg, • Áslaug Hulda Jónsdóttir fyrir SSH, • Friðrik Sigurbjörnsson fyrir SASS, • Kjartan Már Kjartansson fyrir SSS, • Jón Páll Hreinsson fyrir FV, • Ingimar Þór Friðriksson fyrir Kópavogsbæ Faghópur um stafræna umbreytingu var stofnaður í desember 2019. Í hópnum eiga sæti sérfræðingar sem ráðnir hafa verið innan sveitarfélaga til að leiða stafræna umbreytingu innan síns sveitarfélags. Hópurinn hefur stækkað jafnt og þétt en meginhlutverk hópsins er að vera umræðuvettvangur um stafræna þróun sveitarfélaga og veita stafrænu ráði sveitarfélaga faglegan stuðning. Hópurinn aðstoðar við greiningu á stöðu stafrænna mála sveitarfélaga og hugmynda um sameiginleg verkefni sveitarfélaga. Hann skal stuðla að því að fyrir hendi sé yfirsýn yfir stafræna þróun sveitarfélaga og stafræn samstarfstækifæri. Hópurinn aðstoðar við þekkingarmiðlun til sveitarfélaga í samvinnu við stafrænt ráð sveitarfélaga, og einnig inn á stafraent.sveitarfelog.is. Í faghópnum sitja: • Bergný Jóna Sævarsdóttir fyrir Suðurnesjabæ (SSS), • Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir fyrir Reykjanesbæ (SSS), • Gunnar Valur Steindórsson fyrir Egilsstaði (SSA), • Ásta Þöll Gylfadóttir fyrir Reykjavíkurborg (SSH), • Ingimar Þór Friðriksson fyrir Kópavogsbæ (SSH), • Sunna Guðrún Sigurðardóttir fyrir Garðabæ (SSH), • Sigurjón Ólafsson fyrir Hafnarfjörð (SSH), • Óskar Þór Þráinsson fyrir Mosfellsbæ (SSH), • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fyrir Akureyri (SSNE), • Sigríður Magnea Björgvinsdóttir fyrir Árborg (SASS), • Tinna Ólafsdóttir frá Ísafirði (FV) Stafræna ráðið og faghópurinn Forsætisráðuneytið hefur sett í loftið nýtt og uppfært miðlægt vefsvæði um jafnréttismál. Á vefsvæðinu er hægt að nálgast upplýsingar á einum stað um aðgerðir stjórnvalda í jafnréttismálum, ýmsa áfanga og útgefið efni auk þess sem þar er að finna kyngreinda tölfræði sem er hornsteinn að markvissu jafnréttisstarfi. Ísland trónir nú efst á listum yfir árangur í kynjajafnréttismálum og hafa ýmsar aðgerðir stjórnvalda vakið alþjóðlega athygli á kynjajafnrétti hér á landi. Ísland hefur sterka rödd á alþjóðavettvangi þegar kemur að jafnréttismálum og er mikill áhugi innanlands og erlendis frá að fá upplýsingar um stöðu og þróun jafnréttismála á Íslandi. Vefslóð á íslenska útgáfu: stjornarradid. is/jafnretti. Vefslóð á enska útgáfu: government.is/ equality. Nýtt vefsvæði um jafnréttismál

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.