Sveitarstjórnarmál - 2021, Page 53
eftirlitsstofnun velferðarmála.
7. Innleiða Barnasáttmálann með
markvissum hætti í samræmi við
þingsályktun um Barnvænt Ísland.
RR ráðgjöf hefur unnið fjölbreytt
verkefni fyrir sveitarfélög sem snúa að
þjónustu við börn, allt frá stefnumótun til
breytinga á verklagi- eða stjórnskipulagi.
Starfsmenn RR ráðgjafar hafa m.a.
unnið slík verkefni fyrir Hafnarfjarðarbæ,
Skagafjörð, Reykjavíkurborg,
félagsmálaráðuneytið og umboðsmann
barna. RR ráðgjöf hefur nýlega unnið
með Reykjanesbæ að því að draga
fram alla þjónustuþætti sem varða
farsæld barna, flokka þá og skilgreina
hvaða þjónustuþættir falla undir hvert
þjónustustig líkt og þau eru skilgreind í
lögum um samþættingu þjónustu í þágu
farsældar barna. Á grunni þeirrar vinnu
voru lagðar fram tillögur um breytingar
á verklagi sem eru til innleiðingar þessi
misserin.
Aðstæður sveitarfélaga á Íslandi eru
mjög mismunandi. Mikilvægt er að
greina stöðu, bolmagn og innviði hvers
sveitarfélags fyrir sig með það fyrir
augum að finna lausnir sem henta
hverju samfélagi fyrir sig. Ráðlagt er
að hefja þá vinnu með stefnumótun í
málefnum barna og í kjölfarið greiningu
á því hvaða breytingar eru nauðsynlegar
til þess að uppfylla kröfur og markmið
laganna. Með skýrri stefnumörkun og
markmiðasetningu verður innleiðing
umbótanna einfaldari og árangursríkari
enda er vel heppnuð innleiðing forsenda
þess að markmið lagabreytinganna nái
fram að ganga.
RR ráðgjöf hefur sérþekkingu á
stjórnsýslu, rekstri og málefnum
sveitarfélaga og býður fram krafta sína
við að aðstoða sveitarfélög við ofangreind
verkefni sem og önnur tilfallandi
verkefni sem fram munu koma í kjölfar
lagabreytinganna.
Ljóst er að mikil vinna
er fram undan hjá
sveitarfélögunum sem
sinna umfangsmikilli
þjónustu við börn.
Sú vinna mun snúa
að nauðsynlegum
breytingum á verklagi og
stjórnskipulagi.
Gerum
góðar heimtur
betri
Manneskjuleg
innheimtuþjónusta
Okkar sýn er að gera innheimtuþjónustu á
Íslandi manneskjulegri og stuðla að hugarfars-
breytingu gagnvart innheimtuferlinu hjá öllum
sem það snertir.
Sími 520 40 40inkasso.is
BARNVÆNT ÍSLAND