Sveitarstjórnarmál - 2021, Side 58
SVEITARSTJÓRNARMÁL
58
sveitarfélögum. Enn má nefna að tekjur
borgarinnar af sölu byggingarréttar varð
3,2 ma.kr. minni en reiknað var með í
áætlunum.
Það er góð hagstjórnarregla að hið
opinbera auki við fjárfestingar þegar
að kreppir en haldi að sér höndunum
þegar þensla ríkir í þjóðarbúskapnum.
Sambandið mæltist af þessum sökum í
Viðspyrnuáætlun sinni til að sveitarfélögin
flýttu eftir föngum framkvæmdum
sem falla hefðu átt til á næstu árum.
Markmiðið var að auka fjárfestingar
sveitarfélaga jafnvel um 10-15 ma.kr.
með tilsvarandi auknum lántökum. Þetta
gekk ekki eftir og raunar urðu fjárfestingar
sveitarfélaga mun minni en reiknað var
með í fjárhagsáætlunum, eða sem nemur
nær 5,5 ma.kr. Ýmislegt varð til þess að
fjárfestingaráform gengu ekki eftir, ekki
síst má nefna að takmarkanir vegna
sóttvarnaaðgerða töfðu undirbúning
ýmissa framkvæmda sem jafnvel voru
að fullu fjármagnaðar. Reyndar kennir
reynslan að fjárfestingar sveitarfélaga
hafa að jafnaði fylgt hagsveiflunni og
jafnvel ýtt undir hana.
Skýr stefnumörkun
Við búum við töluverðar sveiflur í okkar
þjóðarbúskap og svo verður a.m.k. í
náinni framtíð. Reynslan kennir að við
getum búist við djúpum niðursveiflum
á 10-15 ára fresti. Íslensk sveitarfélög
eru býsna berskjölduð fyrir áhrifum
hagsveiflna og í mun meira mæli en
annars staðar á Norðurlöndum. Vel
ígrundaðar forsendur fjárhagsáætlana
geta auðveldlega brugðist í einu
og öllu eins og dæmin sanna.
Löggjöfin gerir engu að síður miklar
kröfur. Í sveitarstjórnarlögum segir:
„fjárhagsáætlun næstkomandi árs er
bindandi regla um allar fjárhagslegar
ráðstafanir af hálfu sveitarfélagsins.“ Og:
„Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun
…..nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt
viðauka við áætlunina.“
Hvað er til ráða? Skiptir kannski engu
máli hvernig fjárhagsáætlun er stillt upp
og hvaða forsendur eru til grundvallar
lagðar? Getum við ekki bara kíttað upp
í með viðaukum eftir „smag og behag“
og látið annars berast fyrir veðrum
og vindum? Það er ekki vænleg leið.
Sveitarfélög þurfa einmitt að móta skýra
stefnu í fjármálum og setja sér töluleg
markmið. Jafnhliða þurfa þau að draga
upp sviðsmyndir um ýmsa möguleika og
meta með hvaða hætti þau geti brugðist
við þeim.
FJÁRMÁLARÁÐSTEFNA
SVEITARFÉLAGA 2021
Hilton Reykjavík Nordica 7. og 8. október
Bein útsending verður frá ráðstefnunni og
verða upptökur settar á vef sambandsins
að ráðstefnunni lokinni.
www.samband.is/fjarmalaradstefna
PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is
Reykjavík | Akureyri | Húsavík | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar | Selfoss | Reykjanesbær
PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræði-
ráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra
fyrirtækja sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn.
Hámarkaðu árangur þinn og verðmæti með því
að nýta þér fjölbreytta þekkingu og viðtæka reynslu
PwC á öllum sviðum rekstrar.
Endurskoðun
Ráðgjöf
Skattamál
Bókhald og laun
Áhættustýring
Markaðslaun
Jafnlaunagreining
Verðmæti