Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 2021, Qupperneq 62

Sveitarstjórnarmál - 2021, Qupperneq 62
Vettvangur sveitarstjórna er fjölbreyttur og spennandi, hann má nálgast á margan hátt og tryggir því oft á tíðum að þeir sem veljast til setu í sveitarstjórnum höfða til fjölbreytileika íbúa hvers sveitarfélags. Nálgun sveitarstjórnarmanna til verkefna sinna þarf í raun að vera ,,þröng” og ,,víð” þ.e. annars vegar að horfa á einstök verkefni síns sveitarfélags og hins vegar á heildarhagsmuni sveitarfélaga. Að mínu mati hefur of oft hallað á seinni nálgunina sem í raun bitnar á hagsmunum einstakra sveitarfélaga þegar til lengri tíma er litið. Ástæðurnar eru ýmsar en sú nærtækasta er, að oft er auðvelt að höfða til ákveðins hóps kjósenda með því að ,, gera” jafnvel næstu nágranna, t.d. íbúa næsta sveitarfélags að ,,andstæðingi”. Því miður hef ég of oft upplifað slíka nálgun í gegnum tíðina. Þetta ójafnvægi á nálgun sveitarstjórnarmanna hefur að mínu mati m.a. hægt mjög á mikilvægum breytingum á verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Hluti sveitarstjórnarmanna virðist sætta sig við óbreytt hlutfall verkaskiptingar milli ríkis og sveitarfélaga. Það er því mikilvægt hlutverk okkar, sem teljum að halli verulega á sveitarfélögin í þessum efnum, að vinna heimavinnuna og ná þessum hluta sveitarstjórnarmanna á okkar band. Þetta er sérstaklega átakanlegt þegar sveitarstjórnarmenn á landsbyggðinni eiga í hlut því þar er þörfin mest fyrir stærri hlut af verkefnum ríkisins með fjölgun starfa og aukinni fjölbreytni þeirra. Heildarendurskoðun verkefna- og tekjuskiptingar ríkis og sveitarfélaga er nauðsynleg. Sveitarfélögin þurfa að fá hlutdeild í óbeinum sköttum og nærþjónusta á að vera hjá sveitarfélögunum. Dæmin blasa við t.d. þjónusta við aldraða og rekstur framhaldsskóla. Sorgarsagan um hjúkrunarheimilin þegar mörg sveitarfélög neyddust til að skila rekstrinum til ríkisins vegna fjársveltistefnu þess er skýrt en sorglegt dæmi um hvað sá sem fjármagninu ræður getur þvingað þann sem því er háður. Rekstur framhaldsskóla hefur í raun dagað uppi hjá ríkisvaldinu. Eftirlitshlutverk ríkisins er hins vegar mjög mikilvægt á öllum skólastigum en á ekki að vera á hendi rekstraraðila. Það er í raun óskiljanlegt að ekki hafi einu 62 Misjöfn sýn Einar Már Sigurðarson Bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð og formaður SSA/Austurbrúar. Síðasta orðið Sveitarstjórnarfólk hefur síðasta orðið um lífið og tilveruna í sveitarfélaginu og í sveitarstjórn. Verkefni okkar sveitarstjórnarmanna er að nota réttlætið sem vopn í okkar baráttu og stilla saman strengi. Styrking sveitarstjórnarstigsins er stærsta verkefnið í eflingu landsbyggðarinnar og til að ná því fram þarf að tryggja samstöðu sveitarstjórnarmanna með víðsýni að leiðarljósi. sinni náðst fram að eitt sveitarfélag sem tilraunasveitarfélag reki framhaldsskóla. Í ljósi sögunnar er þetta enn furðulegra því mesta framfaraskeið i þróun framhaldsskóla var leitt af sveitarstjórnarmönnum og framfarasinnuðum stjórnendum framhaldsskóla. Verkefni okkar sveitarstjórnarmanna er að nota réttlætið sem vopn í okkar baráttu og stilla saman strengi. Styrking sveitarstjórnarstigsins er stærsta verkefnið í eflingu landsbyggðarinnar og til að ná því fram þarf að tryggja samstöðu sveitarstjórnarmanna með víðsýni að leiðarljósi. SÍÐASTA ORÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.