Mímir - 01.06.1981, Page 30

Mímir - 01.06.1981, Page 30
mótaðir af ferðamynstrínu, t.d. Auðunar þátt- ur vestfirska, Sneglu-Halla þáttur og Halldórs þættir Snorrasonar. Það efast fáir um hagnýtt gildi þess að leita eftir lögmálum í frásögn og finna sam- eiginleg byggingareinkenni fyrir fjölda sagna. Slíkar rannsóknir færa okkur nær eðli hinnar eiginlegu sagnaritunar. En á hvern hátt geta slík vinnubrögð hjálpað okkur við að leysa áðurnefndan vanda við flokkun í bókmennta- greinar? Það er vitað að mynstur Andersons má finna nuin víðar en í þeim 24 sögum sem hann athugar. Hið sama hefur þegar verið fullyrt um mynstur Harris. Það er að mínu viti vita vonlaust að ætlast til þess að finna formgerðareinkenni sem einvörðungu eiga við eina ákveðna bókmenntagrein. Það verður að hafa í huga að innan hinnar munnlegu hefðar tíðkaðist engin skipting í bókmennta- greinar, aðferðir sagnafólksins fóru ekki eftir flokkun seinni tíma á sögunum. í fornurn heimildum er ekki heldur að finna neina slíka skiptingu og fátt bendir til þess að sagna- ritarar hafi verið almennt meðvitaðir um eðli sagnanna. Það má þó lesa ákveðna tilhneig- ingu út úr því hvernig sögur voru valdar saman í stóru safnhandritin. Lars Lönnroth hefur athugað notkun nafngifta á sagnaflokk- un í fornum handritum, er niðurstaða hans mjög á þá leið að engrar reglu hafi gætt, m.a. var ekki skilið á milli innlendra sagna og þýð- inga (Lönnroth ’64:11). Eflaust yrði æði erfitt að bylta svo hinni klassísku flokkun í bókmenntagreinar að atburðamynstrin ein yrðu látin ráða, þótt fátt undirstriki sam- kenni verkanna betur. Joseph Harris hefur skýrt frávik frá mynstrunum svo „. . . struc- ture belongs to the genre, the handling of structure, construction, to the individual author“ (Harris ’72:9). Onnur leið sem einnig er fær, er sú að nýta sér aðferðir Propps, leita uppi helstu frásagnarmynstur fornsagna og skrá þau og flokka. Með því að athuga hina ýmsu frá- sagnarliði og hvernig liðirnir mynda ákveðna frásagnargerð á að vera hægt að nota form- gerðirnar meira en tíðkast hefur til skilgrein- ingar bókmenntagreina. Hugsanleg skilgreining þátta gæti hljómað á þessa leið: Þáttur er stutt frásögn sem yfir- leitt er bundin við einn meginatburð. Þáttur hefur flesta eðlisþætti smásögu. Þættir eiga sér efnislega samsvörun í öðrum forníslensk- um bókmenntagreinum. Þættir bera greinileg merki munnlegrar frásagnarhefðar. Algeng- ustu formgerðareinkennin eru ferðamynstrið, í þeim þáttum sem gerast ekki á Islandi, og deilumynstrið, sem myndar umgerð um flesta þætti sem gerast hér heima. II. HLUTI UM AUÐUNAR ÞÁTT VESTFIRSKA. Formgerð Auðunar þáttar. I. Kynning: Auðunn er nefndur til sögu og greint er frá högum hans hér á Islandi. II. Utanför: Greint er frá ferðum Auðunar, þar til hann kemur til Noregs á fund Haralds, með björninn frá Grænlandi. III. Óvissuástand: Auðunn ögrar Haraldi og lendir í þrengingum með björninn á leiðinni til Sveins, en allt fer á besta veg. Hann ratar enn í raunir í suðuðrför, en fær fullkomna lausn frá þeim. Auð- unn heldur heimleiðis frá Danmörku hlaðinn gjöfum. IV. Sættir: Auðunn kemur á fund Haralds og þeir gera sér endanlega ljósa mann- kosti hvor annars. Þeir skilja fullkom- lega sáttir. V. Heimferð: Auðunn heldur út til Islands, forframaður „ok þótti vera inn mesti gæfumaðr“. VI. Niðurlag: Reynt er að tengja Auðun við höfðingja með því að nefna einn niðja hans. Á þessu yfirliti sést að þátturinn fylgir nokkurn veginn útfærslu Joseph Harris á 28
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.