Mímir - 01.06.1981, Side 43

Mímir - 01.06.1981, Side 43
Málpólitíkina á að reka alls staðar þar sem hægt er, þ. e. a. s. í skólum, fjölmiðlum, á heimilum og á þeim stöðum öðrum þar sem uppeldi fer fram, vegna þess að málið á að þróast á öllum þessum stöðum en ekki að einangrast, s. s. meðal starfsstétta og mennta- manna. II. Islenskan stendur að vissu leyti á tíma- mótum, fræðiorð og samskipti við önnur lönd hafa aldrei verið meiri og rekja má beint til erlendra mála ýmsar málvillur sem algengt er að finna meðal skólabarna s. s. ranga setn- ingaskipan og stælyrði ýmiss konar. Tel ég því nauðsynlegra en nokkurn tíma áður að vanda til þýðinga úr erlendum málum og bæta framsetningu í fjölmiðlum. III. Ekki finnst mér réttlætanlegt að tala um rétt og rangt mál, heldur frekar um gott og slæmt mál. Ef dæmi er tekið af þágufallssýk- inni umtöluðu þá er nú orðið eðlilegra meðal meginþorra landsmanna að nota „mér lang- ar“ í stað „mig langar“ og því ekki forsvar- anlegt að tala um að flestir Islendingar tali rangt mál. I framhaldi af þessu tala margir gott en aðrir slæmt íslenskt mál vegna rangr- ar málnotkunar samkvæmt fræðibókum þó svo að mörgum sé orðið tamara að tala þannig. IV. Eins og áður hefur komið fram tel ég aukin samskipti við útlönd og þar af leiðandi erlend mál hafa mikið að segja um þróun ís- lenskunnar. Skólar og fjölmiðlar verða því að standa sig og halda áfram að vera sterk- ustu öflin í góðri málþróun. * HÖSKULDUR ÞRÁINSSON Ritnefnd Mímis hefur beðið mig að setja nokkur orð á blað um málpólitík, rétt mál og rangt og jafnvel fleira. Eg fékk fjórar spurningar til að hafa til hliðsjónar, og ég ætla fyrst að snúa mér að þeim sem ég hef minnst um að segja. Spurt er hvaða öfl hafi mest áhrif á mál- þróun. Því miður veit ég það ekki. Mér þætti hins vegar gaman að vita það og margir hafa reynt að velta því fyrir sér, t.d. mál- félagsfræðingar. Meðal íslenskra málfræð- inga sem nýlega hafa skrifað um þessa hluti eru Helgi Guðmundsson (1977) og Kristján Árnason (1979). I öðru lagi er spurt um stöðu íslenskunn- ar nú. Eg sé enga ástæðu til að ætla að ís- lenskt mál sé t.d. almennt verra nú en fyrir 50, 100 eða 1100 árum. Auðvitað hefur málið eitthvað breyst, en ég veit ekki um neinn algildan mælikvarða sem mætti bera að máli á mismunandi tímum og lesa síðan af hvort breytingar hefðu orðið til góðs eða ills. En auðvitað hefur málinu hrakað tals- vert síðastliðin 1100 ár ef við gefum okk- ur það að allar málbreytingar séu af hinu illa. I þriðja lagi er spurt hvort mér finnist réttlætanlegt að tala um rétt mál og rangt. Svarið er afdráttarlaust já — auðvitað er hægt að tala um rétt og rangt í máli og það gera allir. Ég býst t.d. ekki við að nokkur myndi hika við að leiðrétta barn sitt ef það segði t.d. MÉR hellti mjólkinni niður, MIG 41
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.