Mímir - 01.06.1981, Page 55

Mímir - 01.06.1981, Page 55
stöðum“. En fáránleikinn á sér stoð og öll atriði Ijóðsins má draga inn í röklegt sam- hengi. Oftast er hægt að tala um módelsmíði á táknum. Perlan og blómið (í ,,Perlan“) o. fl. geta þó flokkast undir hefðbundin tákn. Að öllu jöfnu skýrast táknin aðeins af persónu- legri notkun Jóns og því samhengi sem þau eru í. Bensín í bensínbrúsa getur t. d. ekki talist dæmigert, hefðbundið tákn fyrir ást- ina (í „Lauslæti“ IV). Áðurnefnt fiðrildi er miklu nær því venjulega í sambandi við hana. Táknin eru ýmist „denótatív“ eða „konnóta- tív“. í „Örvæntingin“ er hægt að setja jafn- aðarmerki milli vonarinnar og glataðrar eig- inkonu, barnsins og örvæntingarinnar og flagarans og veruleikans. En málið vandast í „Hjónaband“. Par er ljóst að með nafni ljóðsins ætlar höfundur því ákveðnar skýr- ingar með tilliti til hjónabandsins. Fyrir les- andanum getur þetta orðið annað og miklu meira. Meira um það síðar. Enn er þó ótalið eitt meiri háttar einkenni ljóðanna — vísanirnar. Jón vísar í allar átt- ir, án þess að endursegja þá sögu sem hann vísar í. „Tómas“ og „Promeþevs“ fara þó langt með að vera slík ljóð. Þar fer Jón mjög frjálslega með efnið og notar það til að end- urspegla eigin hugsanir og þrár (,,Tómas“) eða varpa nýju ljósi á samtímann („Prome- þevs“). Annars byggjast flestar vísanirnar á lánum á nöfnum og minnum sem gera oft ekki meira en vekja létt hugrenningatengsl. Samræðurnar við spegilinn í „Eftir dans- leik“ minna t.d. á stjúpuna í Mjallhvíti og dvergunum sjö, kóngssonurinn og stjúpan í „Hjónaband“ á alþekkt ævintýraminni og Gabríel í „Tjaldið fellur“ er tekinn úr Biblí- unni þó Ijóðið sjálft sé ekki beinlínis trúar- ljóð. Jón vísar líka í sjálfan sig: „. . . Pú elskar mig ekki, sagði eg. Pú elskar aðeins ást mína . . .“ („Lauslæti" IV) En í leikritínu, María Magdaíena, segir María: „Eg elskaði þig eklci í gær. Eg elskaði ást þína. . .“ (bls. 59) Og: „Og hann tekur fram undarlega blómið. En vei, það er vaxið inn í brjóst hans. Engu að síður kippir hann út undarlega blóminu.“ (,,Perlan“) í sögubroti sem Jón birti í Eimreiðinni, XXIX. árg., 1923, bls. 225, stendur: „Já, brjóst mitt blæðir, segir stúlkan. Vissirðu ekki að rósirnar uxu úr hjarta mínu?“ I báðum þessum tilfellum er þó óvíst hvort er eldra og hvort er yfirleitt hægt að tala um vísanir í svona tilfellum. Flugum Jóns Thoroddsens má skipta í tvo meginflokka. Annars vegar eru háðsk og jafn- vel bitur ljóð um konur og líðandi stund en hins vegar ljóð um almennari vandamál, hinstu rök mannlegs lífs á stundum. Fyrri flokkurinn er um margt athyglisverð- ari en gæti virst við fyrstu sýn. Lesendum er tamt að líta á gamankvæði — kvæði sem hugsanlega er hægt að brosa yfir — sem alvörulausan vaðal skáldsins og því er gjarn- an farið á hundavaði yfir slíkan kveðskap í allri bókmenntaumfjöllun. í þessum flokki eru 5 fyrstu ljóðin og jafnvel að hluta það sjötta. Öll fjalla þau um konur utan eitt, „Frost á Grímsstöðum“. Það ljóð stendur raunar nokkuð eitt og sér. Að hluta má líta á það sem afneitun á raunsæis- legri skáldsagnagerð Þingeyinganna. Með því að nota Grímsstaði dregur hann lesandann með sér norður og talandi um kulda og slcáld- sögur minnir Jón á Höllu og Heiðarbýlið og fleiri slíkar. Allar sögurnar byggjast á því sama (20 stiga frosti á Grímsstöðum) og eru því allar eins svo tímaritin verða fljótlesnari. En ekki má mikið útaf bera. Öllu máli skipt- 53
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.