Mímir - 01.06.1981, Page 73

Mímir - 01.06.1981, Page 73
RÚNAR HELGI VIGNISSON: MEÐ FELLIBYL í MAGANUM - Smásaga - Þegar þau voru sest inní volgan leigubíl- inn, og hann hafði pantað áfangastaðinn, þá fann hann hvernig hún hallaði sér uppað honum, skynjaði kalt nef hennar á hálsi sín- um. Hann lagði handlegginn yfrum grannar axlir hennar og horfði á gulnuð laufin feykj- ast um gangstéttirnar undan geisandi norð- annæðingnum. Sums staðar voru stórir skafl- ar af þessum nýföllnu laufum, heilir kirkju- garðar. Þá tók hann eftir að hún skalf lítið eitt, og hann þrýsti henni að sér og undrað- ist þennan mikla kulda í henni. Ósköp er þér kalt, sagði hann lágt. Hún saug uppí nefið og hjúfraði sig enn betur uppað honum. Hann sat keikur og horfði með hlutleysissvip útum gluggann, sá dúðað fólkið berjast við hryssingslega hvess- una, sem virtist sækja að úr öllum áttum. Það voru mörg rauð nef á ferð, og honum datt í hug hvort kuldi hefði sérstaka til- hneigingu til að sækja í þann líkamshluta. Hann sá fólk norpa eftir strætó, og eitt augnablik var hann ánægður með sitt hlut- skipti. Svo fann hann alltíeinu heitan dropa falla oneftir hálsinum — fyrst einn, svo annan. Hann hélt áfram að sitja keikur sem stein- kall, því hann vissi ekki hvernig best væri að bregðast við svo óvæntri vætu. Þau voru stödd í aftursæti leigubíls og óku um haust- kaldar götur Reykjavíkur, og hún var farin að vatna músum oná hálsinn á honum. Hvern- ig átti hann að höndla svo viðkvæmt mál? Hann fór mjúkum höndum um axlir henn- ar og strauk hendinni varlega niðreftir þykku hárinu. Hún hafði ofurlítið liðað hár, ljóst. Hann hafði oft handfjatlað það, fitlað við það, fundið það strjúkast yfir andlitið og kitla hann, séð það flaksast í vindi, horft á hana flétta það og hnýta í tagl; dáðst að því. Nú þorði hann varla að strjúka létt yfir það, af því þau sátu í leigubíl með ókunnum bíl- stjóra. Ósköp var hann bjánalegur. Svona svona, hvíslaði hann hljómlausum rómi. Eg hefði aldrei átt að gera þetta, snökti hún, ég ætti ekki að fara frá þér, ég ætti að vera hérna hjá þér. Hann heyrði að hún hafði ekka. Eitt augnablik kviknaði með honum ofur- lítill neisti, bjartur neisti, sem hann vissi mætavel að átti engan tilverurétt. Þess vegna sagði hann: Jú auðvitað ferðu, þú getur ekki hætt við núna. Hann óttaðist að orð hans hljórnuðu ekki nógu trúlega, því hann var slappur í radd- beitingu. Ég er svo hrædd, grét hún. Ég er svo hrædd að fara frá þér, ég er svo hrædd um að ég sé að gera vitlaust. Honum fannst hún hafa svo brjóstum- kennanlegan grát að hann ætlaði varla að geta haldið karlmannsímynd sinni í horfinu, hann ætlaði varla að geta stunið upp að þetta yrði auðvitað allt í lagi, hún þyrfti ekkert að vera hrædd, og hún væri ábyggilega ekki að 71
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.