Mímir - 01.06.1981, Side 74

Mímir - 01.06.1981, Side 74
gera neina vitleysu, — henni mundi líða vel. Hún gæti þetta allt. En hún hélt áfram að brynna músum og hjúfra sig uppað honum, einsog hann væri einhver pétur. Til að þurfa ekki að segja meira, því hann var viss um að hann kæmi ekki upp einu orði til viðbótar, fór hann að grúska í vösum sínum eftir vasaklút. Hérna, sagði hann og rétti henni hvítan vasaklút. Hún tók við klútnum og fór að snýta sér og verka tárin úr andlitinu. Sjálfur þurrkaði hann sér um hálsinn. Hann sá að andlit henn- ar var þrútið, líkast því sem hún hefði sætt langvarandi kuldum eða væri haldin óléttu- bjúg. Hann fór að velta því fyrir sér hvort ökumaðurinn hefði tekið eftir nokkru, hvort hann hefði séð að hún var að skæla, hvort hann hefði heyrt áhvíslingar þeirra. Pað sást þá allavega ekki á manninum, hann virtist hafa allan hugann við aksturinn, var í þann mund að skipta um akrein og fara frammúr. Þetta var miðaldra maður, grár fyrir hærum og djúpar hrukkur kvísluðust um veðrað and- lit hans einsog skurðir um mýri. Lífsreyndur maður og hafði ábyggilega keyrt lengi, var á einum af þessum gömlu datsúnum. Það gerði svosem ekkert til þó hann hefði heyrt eitthvað, hann var bara ökumaður númer 61, og þau mundu sjálfsagt aldrei sjá hann fram- ar. Hún hafði lokið við að hreinsa framanúr sér, en bað um að fá að halda vasaklútnum. Hann óttaðist að hún ætlaði að gráta meira. Mér líður svo illa, heyrði hann hana segja. Það lagast, það lagast, bíaði hann. Þú hressist strax þegar þú hittir krakkana. Ég veit það ekki, sagði hún og var enn með ekka. Jújú, sagði hann og reyndi að vera sann- færandi. Ég er viss um það. Þá fór hún að þakka honum fyrir að hafa komið með sér, það væri svo gott að hafa hann hjá sér, hvað hún vildi óska að hann gæti komið með henni alla leið. Svo táraðist hún pínulítið meira og honum fannst það hlyti að vera gott að eiga svona auðvelt með að gráta. Hann fór aftur að horfa útum gluggann, sleppti augunum lausum á umheiminn. Þarna einhvers staðar var Esjan, og það hafði kast- að föli á þetta fræga fjall sem spakur maður sagði að héti alls ekki Esja, heldur Gunnlaug. Það mátti sjá að hemað hafði á polla um nóttina, sem þýddi að rúðusköfufaraldur hefði geisað fyrr um morguninn. Greinilegt að veturinn var að láta vita af sér, monthan- inn sá. Fyrr en varði yrði sjálfsagt farið að fenna. Það var ekki laust við að tilhugsunin fengi honum hroll þar sem hann sat inní hlýjum bílnum. Bráðum yrði hann að fara út. Þá heyrði hann að hún var aftur farin að tala við hann. Þú verður að skrifa mér, sagði hún í hálf- um hljóðum. Þú verður að skrifa mér fljótt, mér þykir svo gott að fá bréf, sérstaklega frá þér. Viltu það? Já, ég skal skrifa þér, sagði hann. Fljótt, viltu skrifa mér fljótt? ég get ekki beðið lengi. Já, ég skal skrifa þér fljótt, lofaði hann. Ég skal líka skrifa fljótt, kannski strax í kvöld, sagði hún. Hann sagðist kannski gera það líka. Ég hlakka til að fá bréf frá þér, sagði hún þá, þú skrifar svo skemmtileg bréf. Af öllum bréfum sem ég fæ finnst mér þín langbest. Sömuleiðis, sagði hann. Þau voru farin að nálgast áfangastaðinn, og hann var kominn með vind í magann. Hún reisti sig upp í sætinu og reyndi að koma andlitinu í stand. Hann hélt það mætti kann- ski sjá að hún hafði beygt af. „Parting is such sweet tenderness“, hljómaði alltíeinu í huga hans. Svo sást rautt ljósaskilti ota fram stöfun- um BSÍ. Á ég að fara bakvið fyrst þið eruð með svona mikinn farangur? spurði bílstjórinn. 72
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.