Mímir - 01.06.1981, Page 77

Mímir - 01.06.1981, Page 77
GÍSU SKÚLASON: Hrafl úr BA-ritgerS um SÖGUNA AF ÞURIÐI FORMANNI OG KAMBSRÁNSMÖNNUM I. INNGANGUR. Hin „sannsögulega hefð“ hefur löngum átt hugi og hjörtu íslendinga. Er þá átt við bókmenntaverk þau er fjalla um fólk, sem hefur einhvern tíma verið uppi eða á að hafa verið það. Þannig má rekja eina slóð frá Islendingasögum til ævisagna, endurminn- inga og sannsögulegra skáldsagna nútímans. Höfundar eða „flytjendur“ slíkra verka eiga það sammerkt að ætlast til þess af viðtak- endum að þeir leggi trúnað á frásögnina í einhverjum mæli, og það jafnvel þótt „sann- leiksgildið“ sé aðeins fyrir hendi sem listræn blekking. Ljóst er að hluti þessarar hefðar er að nokkru leyti séríslenskt fyrirbæri. Er þá einkum átt við ævisögur og endurminningar Péturs og Páls sem út eru gefnar í löngum bunum í desembermánuði ár hvert. Aðal- persónur slíkra verka eru venjulega komnar af léttasta skeiði og standa föstum fótum í íslensku bændasamfélagi. Þegar litið er yf- ir farinn veg undir þessu sjónarhorni bland- ast eðlilega saman persónusaga viðkomandi og aldarfarslýsingar og héraðsanda liðinnar tíðar. Þessi endurminningahefð hlýtur því að miklu leyti að byggjast á fámenniskringum- stæðum, þ. e. smæð þjóðarinnar, svo og á aldagamalli fortíðardýrkun. Önnur grein á meiði hinnar sannsögulegu hefðar og ekki síður áhugaverð á sitt blóma- skeið hér á landi á sköpunartíma Islend- ingasagna. Stóratburðir á borð við manndráp eða rán hvers konar, viðureign slíkra „fram- kvæmdamanna“ innbyrðis eða við yfirvöld þar sem þau tíðkast hafa ávallt orðið fólki að umtalsefni og fætt af sér ófá listaverk. Þrjú af meginritum Brynjúlfs Jónssonar frá Minna-Núpi (f. 1838, d. 1914) má telja til hinnar sannsögulegu hefðar, þ. e. Söguna af Þuríði formanni og Kambsránsmönnum (1893—97), Bólu-Hjálmars sögu (1911, en Símon Dalaskáld safnaði efni til hennar), og Sögu Natans Ketilssonar og Skáld-Rósu (1912). Öll eru þessi verk að hluta til ævi- sögur, en fjalla öðrum þræði um útistöður sögupersóna við yfirvöld og samtíðarmenn. Sagan af Þuríði formanni hefur fengið minnsta gagnrýni fyrir rangfærslur og stað- lausa stafi þessara þriggja sagna. Ekki leið hins vegar á löngu uns hinar tvær fóru að þykja tortryggilegar (Jóhann Kristjánsson 1912, Sveinn Guðmundsson 1913). Það var ekki fyrr en Guðni Jónsson fór að rannsaka Söguna af Þuríði formanni að ýmsar skekkj- ur komu þar í ljós. Niðurstaða hans var engu að síður sú að sagan væri ,,í heild sinni m'fóg áreiðanleg“ að svo miklu leyti sem heimildir næðu til samanburðar. (Brynjúlfur Jónsson 1975:VIII). Efasemdir um sannleiksgildi þessara verka Brynjúlfs hafa líklega aldrei átt uppá pall- borðið hjá hinum almenna lesanda. Má nefna sem dæmi að árið 1978 leyfði Birgir Sigurðs- son sér að efast um réttmæti ákveðinna at- riða í Sögu Natans og Rósu, og byggði gagn- rýni sína á vitnisburði samtímaheimilda. Rök- 75
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.