Mímir - 01.06.1981, Síða 78

Mímir - 01.06.1981, Síða 78
Semdafærsla hans fékk einkunnina „söguleg falsrök“ auk þess sem hann var sakaður um „ofmat á kirkjubókum“ (JónÓlafsson 1979). I stuttu máli sagt er frásögn Brynjúlfs sett skör hærra en samtímaheimildir. Hún er áreiðanleg, en smávægilegar villur sem þar finnast eru fremur taldar stafa af röngum samtímaheimildum en ónákvæmni höfundar eða ónógri sannleiksást hans. II. SAGAN OG HEIMILDIRNAR. Miðpunktur Sögunnar af Þuríði formanni og Kambsránsmönnum er rán það sem fram- ið var í Kambi í Flóa aðfaranótt 9. febrúar 1827. Hún hefst þó á ævisögu Þuríðar for- manns sem sagan segir að átt hafi drjúgan þátt í að upplýsa glæpinn. Síðan er vikið að uppruna og æviferli ræningjanna, og víða komið við eins og í ævisögu Þuríðar. Þar næst er vikið að aðdraganda, framkvæmd og eftirmálum ránsins, og í lokin er sagt frá af- drifum sakamannanna og margra annarra er við söguna koma. Að eigin sögn byggir Brynjúlfur sögu sína á samtímaheimildum svo langt sem þær ná. Við efni þeirra segist hann síðan auka frásögnum fróðra og ábyggi- legra manna og almennra munnmæla. Sagan á því að vera rituð eftir „bestu heimildum“, og Brynjúlfi er greinilega mjög annt um að henni sé trúað. Nú er það svo að manntöl, kirkjubækur og aðrar „traustar11 heimildir, s. s. réttarskjöl, ná að sjálfsögðu skammt fyrir sagnaritara á borð við Brynjúlf og gera sjaldnast betur en að mynda grind frásagnarinnar. Til að fylla í eyðurnar leitar hann því á önnur mið. Sannleiksgildi frásagnarinnar veltur því á eðli heimildanna og varðveislu, svo og á úr- vinnslu höfundarins sjálfs. Þá má hafa það í huga að meginatburðir sögunnar, ránið og tilheyrandi málarekstur, eiga sér stað í kring- um 1830 (ránið 1827, forsprakkinn háls- höggvinn 1834), en sagan sjálf spannar mun lengra tímabil. Þuríður formaður, helsti heimildarmaður höfundar, er t. d. fædd 1777 og segir frá ýmsu er gerst hafði fyrir og um aldamótin 1800. í lok sögunnar er síðan greint frá láti hennar 1863, þannig að meg- inhluti sögunnar nær yfir a. m. k. 6 áratugi. Tíminn frá því atburðir gerast og þar til sagan kemur út er því frá 30 árum og uppí 90. I fljótu bragði verður ekki betur séð en Guðni Jónsson hafi borið söguna skilmerki- lega saman við samtímaheimildir. Hins vegar er ljóst að skekkjur þær sem hann finnur varða einkum ævi Þuríðar og sögu heima- héraðs hennar. Ályktun Guðna er síðan sú að „æskilegt hefði verið, að höfundurinn hefði leitað til fleiri samtíma heimilda en hann hefur gert“ (Brynjúlfur Jónsson 1975: VIII). Ekkert virðist því athugavert við úr- vinnslu höfundarins þar sem á annað borð liggja samtímaheimildir til grundvallar. Þess ber þó að gæta að oftast er erfitt að sjá hve- nær Brynjúlfur notar slíkar heimildir og hve- nær ekki. Einna öruggast mun þó vera að „traustar“ heimildir liggi að baki ránskaflan- um og yfirleitt því sem fram kom fyrir rétt- inum. Brynjúlfur segir nefnilega1): Rjettarbækur Árnessýslu frá þeim árum skýra frá rannsókn málsins; þar er allt sagt, sem fram kom fyrir rjettinum, og það víðast hvar mjög greini- lega. Á þeim er sagan byggð, það sem þær ná, og aðrar heimildir bornar þar saman við. Bar jafnan saman að mestu, en það er ávallt tekið, er framar greinir. (285) Ekki þarf glöggan mann til að sjá að nákvæm- ar réttarheimildir eiga sinn þátt í þessum hluta sögunnar. Þar úir nefnilega og grúir af smásmugulegum upplýsingum úr vitna- leiðslum og réttarhöldum. Þessi þurri og hlut- lægi fróðleikur er síðan kryddaður með öllu huglægara efni sem greinilega er að miklu leyti frá Þuríði komið. T.d. er þar að finna spaklegar ræður hennar við sýslumann og sakborninga, orð fyrir orð og iðulega undir fjögur augu. Þetta augljósa samsull gefur þannig ákveðnar vísbendingar um vinnuað- 76
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.