Mímir - 01.06.1998, Blaðsíða 20

Mímir - 01.06.1998, Blaðsíða 20
20 Maðurinn er breyttur og heimabyggðin er breytt. Ásýnd þorpsins er allt önnur en áður. Að lokum er ljóð úr Gott er aö lifa, síðustu bók Jóns úr Vör; „Hið liðnaV6 Nú ber svo við að ekki tekst að framkalla myndir úr „minnis- filmunni": Sársaukinn er horfinn og ég man ekki hvernig hann var. Ég man það var sárt. Víst var það sárt. Ekki lengur. Nú get ég ekki munað hverju ég er búinn að gleyma. Orðfærið er látlaust, framsetningin skýr og hnituð. Það er yfirvegun, kyrrð og sátt í ljóð- inu. Nú er sársauki erfiðis, sorgar og fátæktar algjörlega horfinn. Þegar annar póllinn í and- stæðum þorpsins hefur Jourrkast út getur ekki verið mikið eftir af hinum. Þar með er varla Jiorp lengur. 5- Niðurstöður Jón úr Vör ólst upp í kreppu og fátækt á Patreksfirði snemrna á öldinni. Langjrckktasta verk hans, Þorpið, fjallar einvörðungu um æskuárin Jiar. Frægð þeirrar bókar má rekja til formlegra nýjunga og nýstárlegs yrkisefnis en samt sem áður eru ræturnar í íslenskri frásagn- arhefð rammar. Þrátt fyrir að Jón kæmi fram á róttækum tímum og módernismi væri að ryðja sér rúrns í íslenskri ljóðagerð ber hvorki rnikið á pólitískum hita né byltingarkenndum hug- myndum í skáldskap hans. Hins vegar yrkir hann stöðugt um þorpið og skapar sér e.t.v. fyrst og fremst sérstöðu fyrir þau ljóð. Framan af eru þorpsljóðin raunsæislegar svipmyndir úr náttúru og mannlífi á Patreks- firði en með árunum verða minningarnar gjarnan brotakenndari, myndirnar afmarkaðri. Þorpið kemur smám saman fram á annan hátt í ljóðunum og máist í vissum skilningi út und- ir það síðasta. Þó er ekki hægt að tala um að af- staðan til þorpsins breytist í neinum grundvall- aratriðum. Fyrstu Ijóðin eru breið og ort með hefðbundnum bragarháttum en öll Ijóðin í Þorpinu eru óbundin og yfirleitt einnig útleit- in. Síðan verða þau knappari og hnitaðri með árunum Jrótt reyndar megi greina nokkra „út- víkkun“ í ljóðformi síðustu bókarinnar. Allur Jtorpsskáldskapurinn einkennist af mannlegu nænii og hlýju.Tónninn er varfærn- islegur, yfirvegaður og tilgerðarlaus. Þótt ljóðin séu ort út af persónulegum minningum Jóns úr Vör hafa þau alltaf víðari skírskotun. Hvers- dagslegir hlutir og atvik fá aðra og dýpri merk- ingu og hið einstaka öðlast almennt gildi. Skáldið lýkur upp myndaalbúmum en á bak við hverja mynd er saga sem lesandinn getur fengið hlutdeild í. Meginþemað er sú gamal- kunna speki að uppruninn setur mark sem rnaður gengur með alla ævi. Helstu heimildir og stuðningsrit Aarseth, Asbj0rn ogAtle Kittang. 1985. Lyriske strukturer. Innlöring i diktanalyse. 6. opplag. Universitetsforlaget, Oslo. Baldur Ragnarsson. 1983. Ljóðlist. Iðunn. Reykjavík. Bjarni Benediktsson. 1971. Bókmenntagreinar. Einar Bragi bjó til prentunar. Reykjavík. Einar Bragi. 1967. Inngangur. 100 kvceði. Reykjavík. Eysteinn Þorvaldsson. 1980. Atómskáldin. Aðdragandi og upphaf módernisma í íslenskri ljóðagerð. Hið íslenska bókmenntafélag, Reykjavík. Hannes Pétusson og Helgi Sæmundsson. 1973. íslenzkt skáldatal a-l. Bókaútgáfa Menningarjóðs og Þjóðvina- félagsins, Reykjavík. Hugtök og heiti í bókmenntafrœði. 1983.Jakob Benedikts- son ritstýrði. Mál og menning, Reykjavík. Ivar Orgland. 1972. Jón úr Vör. Stilt vaker Ijoset. Fonna for- lag, Oslo. Jóhann Hjálmarsson. 1971. íslenzk nútímaljóðlist. Almenna bókafélagið, Reykjavík. Jón Óskar. 1957.Viðtal við Jón úr Vör. Birtingur. 1.-2. hefti. Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.