Mímir - 01.06.1998, Blaðsíða 34

Mímir - 01.06.1998, Blaðsíða 34
34 mörgum) nöfnum sjálf(ur) en einhvers staðar verður að nema staðar og augljóslega er ein- göngu hægt að fjalla um þær myndanir sem listinn inniheldur. Þar sem heimildir eru frá misjöfnum tínta og sum nöfnin því talsvert gömul er ekki víst að öll séu til enn í dag. Af sörnu ástæðum er stundum um myndanir að ræða sem ekki gætu orðið til núna þar sem þær reglur sem breyt- ingin fór eftir eru ekki lengur virkar.Til dæniis má nefna að Láfi sem er gælunafn Ólafs var sennilega myndað af nafninu þegar það var Óláfr og þess vegna er tvíhljóðið á í gælunafn- inu. 4. Hljóðbreytingar í kaflanum verður gerð grein fyrir helstu hljóðbreytingum sem eiga sér stað við mynd- un gælunafna og nöfn listans voru flokkuð eftir. Þetta eru ýmis konar samhljóðabreyting- ar, tvöföldun samhljóða og sérhljóðabreyting- ar. 4.1 Samhljóðabreytingar 4.1.1 Tengsl upphafshljóðs gælunafns og upphafshljóðs eiginnafns Oftast nær hefur gælunafn sem myndað er af fyrri hluta nafns eða af einkvæðu nafni sama upphafshljóð og eiginnafn, en svo er þó ekki alltaf. Þegar hljóðavíxl verða má hins vegar sjá ákveðna reglu í því, t.d. breytist önghljóð í eig- innafni í lokhljóð með sama eða svipaðan myndunarstað og önghljóðið hafði. Greinileg eru tengslin milli þ í framstöðu eiginnafna og t í gælunöfnum, þau koma t.d. fram íTóta - Þórunn, Tobba - Þorbjörg, Tóti - Þórarinn, Tói - Þórarinn, Tobbi - Þor- björn/Þorbergut; Toggi - Þorgrímur, Tolli - Þorleifur/Þorkell o.fl. Svipuð tengsl virðast vera á milli þ og d\ Dodda -Þorbjörg/Þorgerð- ur, Dúdda - Þórunn, Dói - Þórður/Þórólfur, Doddi - Þórður. Meðal þess sem styður þetta er að einungis fáein gælunöfn halda þ-i í fram- stöðu\ Þura/Þurý - Þuríður, Þrúða -Arnþrúð- ur/Geirþrúður, Þorri - Þorvaldur/Þorvarð- ur. Einhver slík tengsl virðist Iíka vera hægt að sjá milli s og d en um það eru þó aðeins tvö dæmi á listanum og það einungis í kven- mannsnöfnum: Dedda - Sesselía, Diddý - Signý. Ólíkt />inu kernur s oftar en ekki fyrir í framstöðu gælunafna þeirra nafna sem hafa s í framstöðu. Önnur víxl er ekki hægt að sjá rnilli hljóða í framstöðu og tæpast er hægt að búa til reglu sem skýrir af hverju þessi tvö hljóð, þ og s, breytast stundum (þ þó mun oftar) en önnur hljóð gera það ekki. Til dæmis er / líkt og þ óraddað önghljóð; eini munurinn er sá að/er tannvaramælt en þ tannmælt. Þrátt fyrir það virðist / alltaf koma fyrir í framstöðu gælu- nafna sem mynduð eru af nöfnum sem hafa/í framstöðu. Til að finna hljóðfræðilega skýringu á víxl- unum væri hægt að skoða myndunarstað hljóðanna þar sem önghljóðin þ og s hafa nokkurn veginn sama myndunarstað og þau lokhljóð sem koma í stað þeirra. Á móti því kemur svo að samkvæmt þáttagreiningu Eiríks Rögnvaldssonar (1993:32) er munurinn á þ og / nánast sá sami og munurinn á t og þ þrátt fyrir það að hljóðavíxlin f >þ komi aldrei fyrir í sömu stöðu og víxlin þ > t. Það sem skilur að þ og / er að / hefur þáttinn [+samfellt] og [+strítt] en það hefurþ ekki og það sem skilur t og/ að er að þ hefur þáttinn [+samfellt] en t ekki; eina sem munar er þátturinn |+strítt] sem / hefur umfrarn þ. Meiri munur er svo aftur á móti á s og d (en á/og ö), þar sem því munar að s hefur þættina [+samfellt], [+sperrt raddglufa] og [+strítt| en d hefur engan af þessum þáttum. Samkvæmt þessu ættu víxl milli s ogd síður að eiga sér stað en víxl rnilli fogþ. Væntanlega hafa þessi hljóðavíxl þó ekki svo nijög með hljóðfræðilega þætti að gera.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.