Mímir - 01.06.1998, Qupperneq 26
26
Guðmundur Pálsson og Bragi V. Skúlason
Örfáar leiðréttingar og athuga-
semdir við fjölmargar leiðréttin-
gar og athugasemdir við Völuspá
Síðastliðinn vetur unnu greinarhöfundar að
BA-verkefninu „Yöluspá á margmiðlunar-
formi“. Leiðbeinendur voru Njörður P. Njarð-
vík og Eiríkur Rögnvaldsson. Er þetta í fyrsta
sinn sem námsritgerð er unnin á þessu formi
við Heimspekideild Háskóla fslands og þó víð-
ar væri leitað.
Stefnt var að því að útbúa ítarlega útgáfu
Völuspár sem mætti nýta jafnt við kennslu sem
og almennar rannsóknir á kvæðinu. Verkefnið
nýtist öllurn sem áhuga hafa á fornum kveð-
skap, allt frá þeim sem aðeins vilja lesa kvæðið
og til þeirra sem vilja rýna í mismunandi ies-
hætti handritanna.
Allar upplýsingar eru á einurn stað, að-
gengilegar og einfaldar í meðförum.Texta Kon-
ungsbókar Eddukvæða er fylgt eins og kostur
er, og nútímaútgáfa kvæðisins unnin upp úr
handriti hennar. Einnig eru samræmdir textar
Konungsbókar og Hauksbókar birtir. Útgáfur
ýrnissa fræðimanna eru hafðar til hliðsjónar
við gerð efnis- og orðskýringa. Reynt er að gera
grein fyrir öllum vafaatriðum og skýra kvæðið
út frá textanum sjálfum, með tilliti til goðsagna
og kenninga fræðimanna. Stafréttur texti bæði
Konungsbókar og Hauksbókar er birtur sam-
kvæmt handritum, eins nákvæmlega og unnt
er. Hægt er að hafa hann til hliðsjónar bæði
samræmdum texta og nútímatexta. Margt
fleira má nefna, t.d. goðafræði sem tengist
Völuspá, umfangsmikla ritaskrá og stuttar rit-
gerðir um byggingu og efni kvæðisins.
Upphaflega var hugmyndin sú að taka fyrir
sem flest eddukvæði, en fljótlega var þó Ijóst
að eitt kvæði var feykinóg ef því átti að gera
fullnægjandi skil. íslenskuskor þurfti nokkurn
umhugsunarfrest en fyrir tilstilli góðra manna,
sérstaklega Njarðar P. Njarðvík og Eiríks Rögn-
valdssonar, og framsýni íslenskuskorar fékkst
verkefnið samþykkt.
Við hófum leikinn í Þjóðarbókhlöðu og
tæmdum ófáar hillur af eddufróðleik.
Þá sóttum við Netscape communicator 4.0
á netið, lærðum á tölvu og hituðum kaffí.
Hvað er Völuspá?
Völuspá lýsir heimsmynd heiðins siðar og
setur hana í samhengi. Kvæðið er heimsmynd-
ar- og heimslokakvæði þar sem ýmsar goð-
sagnir eru fléttaðar saman í eina röklega
heild.
ÍVöluspá er rnikið lagt upp úr almennu sið-
ferði þar sem spilling goða og manna verður
heiminum að falli. Þessi mikla áhersla á sið-
ferði hefur vakið spurningar um kristin áhrif í
kvæðinu. Það er talið samið um svipað leyti og
kristni er tekin á íslandi. Höfundur er því varla
ósnortinn af hugmyndum hins nýja siðar og
kvæðið jafnvel samið til varnar heiðnum sið.
Kvæðið er ort undir fornyrðislagi og samið
af mikilli þekkingu á goðafræði. Bygging kvæð-
isins er þaulhugsuð og unnið er listilega úr
hinu viðamikla efni þess.
Völuspá er varðveitt í tveimur aðalhandrit-
um: Konungsbók Eddukvæða og Hauksbók.
Einnig eru hlutar kvæðisins varðveittir í hand-