Mímir - 01.06.1998, Síða 49

Mímir - 01.06.1998, Síða 49
49 kennslunnar er líka það að átta sig á eðli mann- legs máls almennt og sérkennum íslensks nú- tímamáls. Mikilvægur þáttur í því er að skoða hvernig menn tilteinka sér móðurmálið í upp- hafí. Þess vegna er lagt til að athygli nemenda, jafnvel í grunnskóla, verði vakin á ýmsum þátt- um máltöku. Þetta getur líka verið þáttur í að ná því viðhorfsmarkmiði sem felst í að vekja áhuga á móðurmálinu, því nemendur hafa yfir- leitt gaman af því að skoða barnamál og geta lagt til ýmiss konar fróðleg dæmi í umræðum um það. Og vilji menn glöggva sig á sérkenn- um íslensks nútímamáls, má bæði sjá þau með því að bera nútímaíslensku saman við ná- grannamálin og við forníslensku. Og þá erurn við komin að málsögu, sem býður upp á tengsl við íslandssögu og menningarsögu o.s.frv. Nú er svo sem viðbúið að einhver segi sem svo: Jesús minn [já, eða bara djísösj, maður þarf að vera sérfræðingur á hundrað sviðum til þess að geta sinnt heildstæðri móðurmáls- kennslu.“ Það er nú kannski orðum aukið, en staðreyndin er þó sú að heildstæð móðurmáls- kennsla gerir miklar kröfur til móðurmáls- kennara. Þess vegna er ekki hægt að ætlast til þess að þeir sinni henni nema þeir hafi að- stöðu til. Þannig er ekki ætlast til þess að móð- urmálskennari í grunnskóla fari að fjalla eitt- hvað um máltöku í sinni kennslu nema það sé gert í einhverjum kennslubókum sem hann hefur tiltækar og/eða í kennarahandbókum eða verkefnabókum sem hann fær í hendur. Nú vill reyndar svo vel til að það er vikið að máltöku og barnamáli í nýlegum kennslubók- um fyrir grunnskóla, svo sem Mályrkju I og Mályrkju 7/eftir Þórunni Blöndal.Auk þess má nefna að máltaka barna og barnamál hafa ver- ið á dagskrá allmörg undanfarin ár innan ís- lenskunnar í Háskóla íslands og einnig við Kennaraháskóla íslands. Þess vegna ættu marg- ir nýútskrifaðir kennarar að standa býsna vel að vígi til að fjalla urn slíka hluti í kennslu sinni. Þarna er líka um svo einfalda hluti að ræða að kennurum ætti ekki að verða skota- skuld úr því að fjalla um þá á grundvelli góðr- ar kennslubókar jafnvel þótt þeir hafi ekki kynnst þeim í eigin nárni. Það gildir þó sama um þetta og annað í móðurmálskennslunni: Það væri örugglega gagnlegt að fá sérstaka leiðsögn í því að matbúa það handa nemend- um og tengja það við eigin lærdóm í fræðun- um. Slík leiðsögn er oft veitt á sérstökum kenn- aranámskeiðum, en við í Háskólanum ættum líka að leggja meiri áherslu á það. í því skyni gæti sérstakt námskeið í heildstæðri móður- málskennslu á M.Paed.-stigi áreiðanlega nýst vel. Að lokum er vert að reyna að leiðrétta al- gengan misskilning um það hvað felist í heild- stæðri móðurmálskennslu. Margir kennarar telja nefnilega að í henni felist að maður verði að „vaða úr einu í annað“ í öllurn móðurmáls- tímum. Það er því betur misskilningur. Móður- málskennsla getur auðvitað verið heildstæð þótt ekki sé fjallað um alla þætti móðurmálsins í öllum tímum. Hugmyndin er ekki að það verði að fjalla um „lestur, talað mál og fram- sögn, hlustun og áhorf, ritun, bókmenntalestur og málfræði “ í öllum móðurmálstímum. Það yrði líklega seint markviss kennsla. Enginn ætl- ast heldur til þess að móðurmálskennarar forð- ist að glugga í Gísla sögu án þess að nefna við- tengingarhátt í sömu andrá, eða leyfi sér ekki að tala um forsetningar í einni kennslustund án þess að lesa nokkur ljóð í lokin til bragð- bætis. En heildstæð móðurmálskennsla felur það í sér að markmiðum málfræðikennslu hef- ur ekki verið náð þótt nemandi geti „full- greint“ þar til gert safn af sundurlausum setn- ingum og málsgreinum í orðflokkagreiningar- verkefni ef hann getur ekki notfært sér þessa þekkingu í umræðu um mál, málfar og texta að gefnu tilefni. Þetta þýðir líka að markmiðum heildstæðrar móðurmálskennslu væri ekki náð við lestur Gísla sögu ef þar væri aldrei hugað að neinum málfarslegum einkennum textans, svo sem dæmum um fornlegt orðaval, sér- kennilega setningagerð o.s.frv. En þetta þýðir alls ekki að móðurmálskennarar eigi að leggja
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.