Mímir - 01.06.1998, Qupperneq 54
54
Þannig skapar þversögnin í upphafi ákveð-
na spennu og lesarinn hlýtur að vera á varð-
bergi, hvernig sem hann leysir úr þversögn-
inni. Dagný Kristjánsdóttir hefur bent á að
Brekkukotsannáll sé írónísk bók.‘; Eins og
mörg önnur verk Halldórs Laxness snýst
Brekkukotsannáll að miklu leyti um hvað sé
satt og hvað sé blekking - eða hvort eitthvað
sé yfirhöfuð annað en blekking.
Þannig virðist í Sjálfstæðu fólki sögð hetju-
saga um landnámsmann íslands, sjálfstæðan
mann sem hefur tekið þá stefnu í lífinu að
standa einn og vera engum háður. En þessi
sjálfstæði maður er í sögulok orðinn vinnu-
maður háaldraðrar tengdamóður sinnar á kot-
jörð hennar eftir að hafa sáð „í akur óvinar síns
alt sitt líf, dag og nótt.“10 Heiti sögunnar virðist
vera öfugmæli, sjálfstætt fólk er ekki til, að
minnsta kosti í skilningi Bjarts bónda í Suntar-
húsum.
Hetjusaga Bjarts er smám sarnan afhjúpuð
sem blekking í sögunni. Ég hef áður haldið því
fram að þar gegni áðurnefnd tengdamóðir
hans lykilhlutverki með því að syngja í öðrum
takti þannig að hetjukviðan fer hreinlega af
laginu, verður fölsk. Þetta nær hún að gera með
því að vera sjálf ein allsherjar þversögn, virðist
út úr heiminum en skilur þó heiminn, virðist
blind en sér, er aðalpersóna í gervi aukaper-
sónu, virðist höll úr heimi en lifir þó alla aðra
af. Þetta þversagnareðli Hallberu gömlu hnikar
merkingu hinnar skynsantlegu sögu um hinn
sjálfstæða heiðarbónda - söguþráðs Gróðurs
jarðar eftir Harnsun - og allt sent Hallbera seg-
ir og gerir í sögunni grefur enn frekar undan
þeirri hetjusögu um landnámsmann íslands
sem Sjálfstætt fólk virtist vera.11
Fleiri persónur hafa þetta hlutverk í sögum
Halldórs Laxness. Þversagnakenndar persónur
skipta öllu máli við túlkun verkanna og raunar
þversagnir almennt. Þær eru að minni hyggju
meginaðferð skáldsins til að auka frelsi lesar-
ans þar sem þær hafa þau áhrif að í stað einn-
ar merkingar, einnar túlkunar, einnar lausnar, er
óvissa og efi unt hvernig beri að túlka hverja
sögu. í Sjálfstæðu fólki er þannig ótvírætt að
goðsögnin um sjálfstæða heiðarbóndann er
lífslygi og sjálfsblekking Bjarts. Á hinn bóginn
er enginn stórisannleikur settur fram til mót-
vægis. Lesarinn verður sjálfur að finna hann.
í æsku talar Halldór Laxness um „paradoxa-
list“ sína í bréfi til Einars Ólafs Sveinssonar.12
Þessi „paradoxalist“ skáldsins er tækni sem
gerir kröfur til lesandans, leið til að fá hann til
að hugsa í stað þess að troða upp á hann Sann-
leik (með stóru s-i). Upphaf Brekkukotsannáls
er ein birtingarmynd þessarar tækni, ræða Jóns
Hreggviðssonar um hvort hann hafi drepið
mann annað, hlutverk Hallberu gömlu í Urðar-
seli í Sjálfstæðu fólki enn eitt. Þversögn er auð-
vitað stílbragð og um notkun skáldsins á því
hefur Þorleifur Hauksson fjallað í íslenskri stíl-
fræði. Hann nefnir mörg dæmi um það hvern-
ig hið háfleyga og lágkúrulega glíma í sögu
skáldsins. Þegar höfundur hefur hafið sig í há-
tinda kippir hann sér niður á jörðina með kald-
hæðnurn hala sem er úr stíl við það sem á und-
an fór og er einatt þversögn.13
En þversagnirnar í skáldverkum Halldórs
Laxness eru ekki eingöngu stílbragð, ekki að-
eins „paradoxalist" sem eins konar skreytilist.
Þær ntynda kjarna skáldskaparins því að þær
eru leið skáldsins til að segja satt á öld þar sem
ekkert er satt lengur - eða eins og Halldór orð-
ar það sjálfur í ellinni: „Fjarstæða er eingin til í
lífinu nema sönn saga.“14 Þversagnirnar eru til
vitnis unt átök merkingar og merkingarleysis,
skiljanlegra drauma og óskiljanlegs veruleika
þar sem engin rétt lausn er til, engin gáta sem
höfundur skýrir í lokin, eins og Hercule Poirot
í sögum Agöthu Christie. Lesandinn verður að
freista þess að ráða gátuna án þess að vita
hvort við henni sé svar.
í reiðilestri Benjamíns H.J. Eiríkssonar um
Halldór Laxness og upphaf Brekkukotsannáls
er eitt orð enn sem hittir í mark. Það er orðið
„tíska“ en Benjamín vill tengja Halldór Laxness
við hana. Og það er hárrétt hjá honum. Orðið
„tíska“ er náskylt orðinu „tíð“ og vísar þá til
þess sem er í tengslum við samtímann, við