Mímir - 01.06.1998, Side 61

Mímir - 01.06.1998, Side 61
61 Heimildir í heimildaleysi Magnús Hauksson hefur fjallað um íslensk- ar heimildabókmenntir eða dókúmentarisma.15 í athugun hans á rótum íslenskra heimilda- skáldsagna skilgreinir hann bókmenntagrein- ina þannig: Dókúmentarískar bókmenntir lýsa „sannsögulegum við- burðum með því að nota heimiklir beint, svo sem skjala- gögn, vitnisburði, viðtöl o.s.frv." En fyrir utan þessi atriði er ýmist lögð höfuðáhersla á formlega einkennisþætti eða það hlutverk sem þær eru taldar eiga að gegna. Þegar áherslan er á síðarnefnda atriðinu felur hugtakið í sér hugmyndafræði- legan eða pólitískan merkingarþátt.16 Dókúmentarismi er jafnan skilgreindur út frá formi skáldsögunnar og er þá miðað við að efni hennar sé byggt á sögulegum heimildum sem skipi mikilvægan sess í framsetningunni og að allt myndi saman fagurfræðilega heild. Þessi bókmenntagrein var endurvakin á sjö- unda áratugnum í Skandinavíu og um sama leyti spratt fram hefð sannsögunnar í Ameríku (the non-fiction novel). Dókúmentarisminn kom þá fram sem andóf gegn þeim módern- ískubókmenntum sem sniðgengu félagslegan veruleik. Dókúmentaristar vildu ljá bókmennt- um aukið vægi í samfélagsumræðunni og snér- ust því gegn því að þær afmörkuðu sér sérstak- an sess þar fyrir utan. Listin ekki fyrir listina.Að því leyti er dókúmentarismi viðbragð gegn módernisma. Módernismi og dókúmentarismi eiga það hins vegar sameiginlegt að vera and- óf gegn sefjandi bókmenntum hvor á sinn hátt. Módernismi með innbyggðum efa um samband veruleika og texta en dókúmentar- isminn með beinum tengslum verks við sann- anlegan raunveruleika - veruleikaspeglunin er hafin á æðra stig. Skáldsagnagrein þess dókúm- entarisma sem skaut rótum vestanhafs hefur verið nefnd „The nonfiction novel“. í bók sinni The Mythopoeic Reality fjallar Masud Zavarzadeh um upphaf og inntak þess- arar bókmenntagreinar. Þar er um að ræða ný- sköpun í amerískum frásagnarhætti sem bregst við heimsmynd sem líkist skáldskap, er lyginni líkust. Höfundur slíkrar sögu leitast meðvitað við að vinna gegn heildstæðum skáldsögum (e. totalizing novels), þar sem höfundar reyna að túlka mannlega tilveru út frá yfírgripsmiklu sjónarhorni og veita lesandanum sefjun. Hins vegar er sagt frá þannig að túlkun söguhöfund- ar er lágmörkuð eða henni útrýmt. Að mati þessara höfunda grefur heimsmynd nútímans undan öllum tilraunum til túlkunar og gerir slíkar túlkanir tilfallandi (e. arbitrary) þannig að á sama tíma geta þær verið réttar og fjar- stæðukenndar. Úr slíku umhverfi spretta þess- ar sögugerðir. Samkvæmt skilgreiningu Zavar- zadeh er ljóst að þar er um sama fyrirbæri að ræða og nefnt hefur verið dókúmentarismi og dókúmentarískar skáldsögur í Evrópu. Til að- greiningar nægir því að nefna þetta „ameríska dókúmentarismann". Zavarzadeh segir að í venjubundnum heild- stæðum skáldsögum sé óreiða tilverunnar sett fram sem skipuleg heild sem stjórnast af lög- málum sem má skýra með skynsamlegum rök- um. Með tilkomu sjónvarps og kvikmynda er að vissu leyti grafið undan gildi venjulegra frá- sagnarbókmennta því að þeir miðlar eru að flestu leyti mikilvirkari frásagnarhættir og í samanburði við þá virðist heildstæð skáldsaga smætta og einfalda lífið og tilveruna. Halldór Laxness tekur í sama streng í viðtali við Josef- Herman Sauter árið 1977: „Kvikmyndin og sjónvarpið eru það sem hefur rústað skáldsög- una nú á dögurn. Það eru frásagnarmiðlar eins og rithöfundurinn en þeir geta sagt frá hraðar og skýrar. Þeir geta sagt alveg heila sögu.“17 Á árunum eftir seinni heimstyrjöldina hef- ur raunveruleikinn orðið líkastur ýkjukennd- um skáldskap í augum flestra. Hugmyndafræði- legar mótsagnir, kjarnorkusprengjur, fáránleiki, ofbeldi, hraði breytinga, her á íslandi, og fram- farir blandnar ótrúlegum tækninýjungum er einkenni nútímans svo að sérhverjum þeim skáldsagnahöfundi, sem lystir að gera tilver-

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.