Mímir - 01.06.1998, Blaðsíða 69

Mímir - 01.06.1998, Blaðsíða 69
69 Eiríkur Rögnvaldsson Tungutækni í. Hvað er tungutækni? Orðin „tungumálaverkfræði “ og „tungu- tækni“ koma mörgurn ókunnuglega fyrir eyru, sem von er, en hafa þó stungið upp kollinum stöku sinnum á undanförnum misserum. Bæði eru þau þýðingar á enskurn orðurn, annars vegar „language engineering" sem hefur verið notað um nokkurt skeið og hins vegar „langu- age technology“ sem er rneira notað upp á síðkastið. Merkingarmunur þessara orða er hvorki mikill né skýr, en í stuttu og einfölduðu máli má segja að þau séu notuð um hvers kyns hagnýtingu tölvutækninnar í tengslum við mannlegt mál - og öfugt. Undir þetta fellur t.d. smíði talgervla sem líkja eftir mannsrödd og lesa upp ritaðan texta, forrit sem leiðrétta staf- setningu, beygingar og stíl, þýðingarforrit og fjöldamargt annað. Rétt er að leggja áherslu á að tungutækni er alls ekki fræði, heldur tækni, eins og orðið bendir til. Eins og títt er um tækni liggja hins vegar mikil fræði þar að baki; ekki síst tölvufræðileg málvísindi eða máltölv- un (computational linguistics) og textamál- fræði eða gagnamálfræði (corpus linguistics). 2. Tungutækni, talgreining °g upplýsingabyltingin Þróunin í tölvuheiminum stefnir í þá átt að tungumálið - venjulegt, mannlegt mál - sé not- að sífellt meira og á fjölbreyttari hátt en áður. Þetta á t.d. við í hvers kyns upplýsingaleit í gagnabönkum, á veraldarvefnum o.s.frv. í stað þess að fyrirspurnir séu settar frarn á staðlaðan hátt, með takmörkuðum orðaforða, er nú stefnt að því að hægt sé að spyrja á venjulegu máli, sem næst því sem maður ræðir við mann. Augljóst er að þetta eykur rnjög aðgengi al- mennings að upplýsingum og gagnabönkum, vegna þess að ekki er lengur þörf á að setja sig inn í flóknar reglur um það hvernig fyrirspurn- ir skulu settar fram.Tölvuforritin eru að verða það fullkomin að þau geta túlkað mun fjöl- breyttari fyrirspurnir. Þar að auki má búast við að þróun í tungutækni geri mönnum auðveld- ara að leita sér upplýsinga á ýmsurn tungumál- um í framtíðinni. Þannig segir t.d. í bæklingn- um Language and Tecbnology, sem Evrópu- sambandið gaf út 1996 (s. 6-7): In an ideal world, every user would be able to access the information they required using their own language, and be able to receive the information in their own language.'In- formation’ in this context includes business and commerci- al information (including advertisements, orders, bills, pay- ments, etc.), educational materials, entertainment, and so on. Á næstu árum má einnig búast við mikilli þróun í talgreiningu og hagnýtingu hennar. Með talgreiningu er átt við það þegar tölvu- forrit greinir það sem sagt er og túlkar það. Augljóst er að slík greining opnar rnjög mikla og fjölbreytta möguleika. Þannig er t.d. hægt að hugsa sér að hvers kyns tækjum (heimilis- tækjum, bílum, tölvum o.s.frv.) verði stjórnað með því að „tala við“ þau, í stað þess að ýta á takka, snúa stýri eða snerlum, slá inn skipanir o.s.frv. Það er skemmra í það en marga grunar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.