Mímir - 01.06.1998, Side 70

Mímir - 01.06.1998, Side 70
70 að þetta verði mögulegt; spurningin er ekki hvort, heldur hvenær. En þó er einn hængur á. Til að þetta sé mögulegt þurfa að liggja fyrir geysimiklar, fjöl- breyttar og nákvæmar upplýsingar um tungu- málið, og þær þarf að setja upp í ákveðið kerfí, til að forritin geti byggt greiningu sína á þeim. Talgreining byggist t.d. á mjög ítarlegri grein- ingu á málhljóðum og hljóðkerfi þess tungu- máls sem verið er að greina.Til að hægt sé að túlka það sem sagt er þurfa auk þess að vera fyrir hendi hvers kyns upplýsingar um beyg- ingu, orðmyndun og setningagerð tungumáls- ins, auk mjög stórs og ítarlegs orðasafns þar sem geymdar eru hvers kyns upplýsingar um merkingu og notkun orðanna. Það þarf vart að taka fram að ekkert af þessu er til fyrir íslensku - varla einu sinni vísir að því. Það bendir því fátt til þess að íslenska verði gjaldgengt tungu- mál á þessu sviði. íslendingar verða áfram að láta sér lynda að nota ensku í samskiptum við tölvur - en ekki bara tölvur, heldur fleiri og fleiri tæki og tól sem þeir nota í daglegu lífi. 3. Tungutækni og íslensk málrækt Og þá er komið að þýðingu tungutækninn- ar í íslenskri málrækt. Hér er nefnilega komin upp splunkuný staða, sem ekki á sér hliðstæðu fyrr í málsögunni. Það eru að koma til mikil- vægir þættir í daglegu lífí venjulegs fólks þar sem móðurmálið er ónothæft. Takið eftir að þarna er þrennt sem spilar saman, og það skapar hættuna. Um er að ræða mikilvæga þætti, en ekki einhver aukaatriði; þessir þættir snerta daglegt líf, en korna ekki bara fram ein- stöku sinnum, við einhverjar sérstakar aðstæð- ur; og þetta á við venjulegt fólk, allan almenn- ing, en ekki eingöngu sérfræðinga á einhverju þröngu sviði. Ég held að málið gæti varist sam- spili tveggja þessara þátta, en þegar allir þrír koma saman kann að vera hætta á ferðum. Þótt einstöku stéttir, t.d. flugmenn, tali ensku eða sletti ensku í daglegum störfum er það ekki hættulegt; þar er bæði hópurinn og aðstæðurn- ar takmarkandi. Það er alþekkt að dauðastríð tungumála hefst einmitt þegar aðstæður af þessu tagi koma upp; þegar mál er ekki lengur nothæft við allar aðstæður í hversdagslegu lífí almenn- ings. Móðurmálið verður þá víkjandi, það er aðeins hæft til heimabrúks en ekki til neinna alvarlegra hluta. Við slíkar aðstæður hrekkur jafnvel ríkulegur bókmenntaarfur og öflugt ný- yrðastarf skammt; málið á sér ekki viðreisnar von, og hlýtur að hverfa á tiltölulega stuttum tíma. Unga kynslóðin sér ekki lengur tilgang í að læra málið, heldur leggur alla áherslu á að tileinka sér erlent mál, enskuna væntanlega, sem best. Ég er ekki að segja að íslenskt mál- samfélag sé komið á þetta stig, en það gæti ver- ið stutt í það. Ég held að breytingarnar á þessu sviði hafi verið miklu örari nú allra síðustu ár en menn gera sér grein fyrir. Til að tungumál smáþjóða eins og íslend- inga eigi einhverja lífsvon þurfa málræktar- rnenn að gera sér grein fyrir hinum breyttu að- stæðum, og upphugsa ráð til að bregðast við þeim. Stjórnmálamenn verða að átta sig á að það kostar peninga að verja lítil málsamfélög, og gera það upp við sig hversu miklu fé þeir vilja verja til að vernda tungumálið. Að sjálf- sögðu er hægt að útbúa sams konar gagnasöfn fyrir lítil tungumál og stór - ef nægilegt fé er fyrir hendi. En hér er ekki um neinar smáupp- hæðir að ræða - sumir hafa nefnt þrjá milljarða. Hversu raunhæft sem það er, þá er ljóst að kostnaðurinn er mikill, og alls óvíst hvort stjórnvöld sjá sér fært að veita nægilegt fé í þróunarstarf á þessu sviði. 4. Tungutækni í íslensku- náminu En það vantar ekki bara peninga, heldur líka fólk, eins og ég benti á í grein í afmælis- blaði Mímis haustið 1996:

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.