Mímir - 01.06.2023, Side 15
13Mímir 53 - Mímishöfuð
vegna þess að skáldtextunum sjálfum hefur fjölgað svo mikið
á síðustu árum. Nú er svo margt áhugavert til umfjöllunar sem
ein manneskja kemst náttúrulega ekki yfir.
Hver er helsta breytingin sem þú hefur séð á
síðustu 10-20 árum?
Hinsegin bókmenntir samtímans eru opinskárri og meira til af
þeim, nú er farið að fjalla um fjölbreytt málefni á opinskáan
hátt í meira mæli heldur en áður. Þegar við erum að skoða
hinsegin bókmenntir frá 20. öld þá erum við oft að leita á milli
línanna, að einhverju sem ekki er sagt, því sem sést aðeins í til
hliðar eða í bakgrunninum. Þetta hefur breyst og sést kannski
ekki svo mikið lengur.
Hvað eru margir nemar í Kynvillta
bókmenntahorninu?
Þau eru tíu, flest í meistaranámi í bókmenntafræði,
ritlist og íslensku, ásamt tveimur í grunnnámi í
íslensku og almennri bókmenntafræði.
Hvernig er þetta launaða fyrirkomulag?
Þetta er tímabundið verkefni sem er í gangi núna þar
sem nemendur fá borgað fyrir að skrifa pistla en lesa
líka yfir hjá hvert öðru, er bara tímabundið. Planið er
að halda þessu áfram, bæði að ég skrifi sjálf og fái fleiri
í lið með mér, þótt það sé ekki víst að það verði launað.
Þetta verkefni átti að blása lífi í Kynvillta bókmenntahornið
og kynna það þannig að það geti verið lifandi og skemmtilegt
næstu árin. Ég vil gjarnan að sem flestir hafi samband við mig
og sendi mér efni. Kynvillta bókmenntahornið er opið öllum
sem hafa áhuga á að skrifa um hinsegin bókmenntir.
Hvernig er ritskoðunarferlið?
Guðmundur Hörður Guðmundsson er ritstjóri Hugrásar en
við gerðum samkomulag um að ég ritstýri efninu sem kemur
inn í Kynvillta bókmenntahornið. Ég les yfir efnið sem mér er
sent, ég geri athugasemdir og ég prófarkales áður en þetta fer
inn á vefinn. Í þessu verkefni núna les nemendahópurinn líka