Læknaneminn - 01.01.2017, Side 91

Læknaneminn - 01.01.2017, Side 91
Fr óð lei ku r 90 Hvað er þetta FOAM? Símenntun lækna Elías Eyþórsson læknir Nemendur í læknisfræði nota oft á tíðum mynd mál sem tengist vatni til að lýsa námi sínu. Um fangi náms ins er líkt við að drekka vatn úr bruna hana og nem endur tala um að þeir séu að drukkna í náms efni. Ég ætla að gera heiðarlega tilraun til að halda þessu myndmáli gangandi og líkja árunum eftir útskrift við leka fötu. Í þessu myndmáli er fatan heili og vatnið þekking. Tvennt skal tekið fram. Í fyrsta lagi hefur fatan alltaf lekið. Ef þið viljið sann reyna það þá skuluð þið rifja upp Krebs hringinn. Hélt ekki. Lekinn verður hins vegar meira áberandi eftir útskrift. Starf læknis er fyrst og síðast að taka ákvarðanir byggðar á þekkingu og gögnum. Lekinn verður meira áberandi þegar stöðugt er verið að sækja í fötuna og grípa í tómt. Í öðru lagi þá er ekkert hægt að gera til að minnka lek ann. Ef ætlunin er að halda fötunni fullri af vatni þá er besta lausnin að fylla stöðugt á. Í þessari grein ætla ég að færa rök fyrir ákveðnu vinnuflæði við símenntun. Hugmyndir mínar byggja á tveimur meginstoðum: 1. Ákvarðanaþreyta Eftir dæmigerðan vinnudag hefur læknir tekið hundruð ákvarðana sem snerta líf sjúk­ linga og fjölskyldur þeirra. Slíkt veldur ákveðnu sliti. Ég hef heyrt kandídata lýsa því sem þreytu sem leggst á sálina. Fyrirbærið ákvarðana þreyta (e. decision fatigue) hefur verið skilgreint og rannsakað. Mannskepnan virðist hafa tak markaða getu til að taka veigamiklar ákvarðanir. Þessu hefur verið líkt við vöðva sem þreytist við álag. Ef leggja á símenntun ofan á vinnu daginn þarf því að fækka ákvörðunum tengdum lestrinum. Ímyndum okkur tvo lækna sem vilja báðir stunda símenntun. Læknir A kemur heim eftir vinnudaginn og fær sjálfkrafa sent efni til að lesa. Efni sem hefur skilgreint upphaf og enda. Hann þarf einungis að ákveða að byrja. Allar aðrar ákvarðanir hafa þegar verið teknar. Læknir B kemur heim og þarf að ákveða hvað hann ætlar að læra í dag. Næst þarf hann að finna upplýsingar um efnið í bókum eða á internetinu og ákveða hvað af því hann ætlar að lesa. Það eru engin föst endamörk. Hann getur alltaf haldið áfram. Hann þarf því líka að ákveða hvað hann ætlar að verja löngum tíma í lesturinn. Hvor þeirra heldur sig frekar við efnið? 2. Staðreyndir og skilningur Þekkingu í læknisfræði má gróflega skipta í stað reyndir og skilning. Staðreyndir eru best lærðar með dreifðri endurtekningu (e. spaced repitition). Fyrir þessari fullyrðingu liggur fjöldi rannsókna. Skilningur, það hvernig beita á staðreyndum, felst í því að mynda tengsl milli staðreynda á kerfislægan hátt. Hann er best að læra af fólki sem skilur nú þegar hvernig staðreyndirnar raðast saman. Með vísan í rökin hér að ofan hef ég beitt eftir­ farandi aðferð við símenntun fyrir sjálfan mig. Til að tapa ekki þeirri staðreyndaþekkingu sem tók sex ár að afla hef ég notast við ókeypis forrit sem heitir Anki (http://www.ankisrs. net). Í Anki er notast við rafræn kort. Þér er sýnd framhlið kortsins og þar er ýmist hugtak, spurning eða eyðufylling. Þegar þú telur þig vita svarið færð þú að sjá bakhlið kortsins sem geymir rétta svarið. Þú ert næst beðinn um að tilgreina hvort þú hafir svarað rétt eða ekki og hversu erfið þér fannst spurningin vera. Anki byggir á algrím (e. algorithm) sem reiknar hagkvæmustu dreifðu endurtekninguna. Þau kort sem þú gast ekki svarað birtast strax aftur og þau kort sem þú gast svarað en þótti erfið birtast fyrr en þau sem þér þótti auðveld. Með hverri endurtekningu lengist tíminn sem líður þar til þú sérð kortið aftur. Anki fæst bæði fyrir snjallsíma og tölvur og samstillir árangurinn milli tækja þráðlaust. Anki semur ekki kortin fyrir þig. Þú sem notandi getur samið þín eigin kort eða þú getur notað þau 23.142 kort sem ég hef safnað saman síðastliðin ár (http://bit. ly/kort_medicine). Erfiðara getur verið að viðhalda skilningi. Spreng ing hefur orðið í þekkingarmiðlun í læknis fræði á formi bloggfærslna frá kennslu­ glöðum læknum. Byltingin ber enska yfirheitið Free Open Access Medical Education (FOAM). Líkt og ég færi rök fyrir hér að ofan er ekki hægt að ætlast til þess að lækna nemar eða læknar setjist niður eftir erfiðan vinnu dag og leiti sér að lestrar efni. Mín lausn á þessu er vef síða sem heitir Feedly (www.feedly.com). Feedly er einnig til sem forrit í snjall síma. Þar get urðu til tekið hvaða blogg um og vef síðum þú vilt að Feedly fylgist með. Feedly sækir síðan upp lýsingar þaðan í hvert sinn sem nýjar færslur birtast og setur það saman í einn auð­ meltanlegan lista. Þú þarft því ekki að ákveða neitt nema að lesa það sem er á listanum. Líkt og Anki þá samstillir Feedly lestur milli tækja. Þegar þú klárar að lesa grein þá hverfur hún af list anum. Þú getur bætt við öllum þeim bloggum sem þú hefur áhuga á að lesa eða þú getur, með nokkrum músasmellum, afritað allar þær 43 áskriftir sem ég hef safnað saman (http://bit.ly/askriftir). Það eru margar leiðir til að fylla á fötuna. Hér kynnti ég þá leið sem ég hef notað síðastliðin ár. Með ofangreindri aðferð fæst stöðugt innflæði með lítilli fyrirhöfn. Hún dreifir áfyllingunni yfir tíma og hefur nýst mér vel. Fatan hefur að minnsta kosti ekki tæmst enn sem komið er.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.