Vinnan og verkalýðurinn - 01.05.1955, Síða 15

Vinnan og verkalýðurinn - 01.05.1955, Síða 15
Verka- menn á Akureyri þurftu einnig að hafa sína verkfalls- verði á vegum úti, til að stemma stigu fyrir uppivöðslu verkfalls- brjóta. hans og „kenna honum að hætta að gera kröfur“. Þetta var stefna hins bandaríkjasinnaðasta hluta auðstétt- arinnar, sem hafði ofmetnazt af auði sínum og völdum, sem fyrirlítur verkalýðinn, hatar og hræðist sam- tök hans og skákaði í skjóli banda- rískrar hersetu og bandarískrar her- námsvinnu. Allt fram undir lok verk- fallsins stóð þessi klíka við stýrið, unz hún varð að láta undan síga. — Allt frá upphafi var verkfallið al- gert. Það kom í ljós, að í þessari miklu vinnudeilu hafði skapast eining með- al verkafólksins, sem varla á sinn líka í íslenzkri verklýðssögu. Fylking verkfallsmanna samanstóð af mjög mismunandi félögum fag- lærðra og ófaglærðra. Stjórnmálalega náði þessi fylking allt frá hinum róttækustu til hinna hægrisinnuðu. , En aldrei rofnaði þessi fylking né’ kom í hana nein sprunga. Allar á-L kvarðanir um undirbúning og rekstur þessa margþætta og vandasama verk- falls voru gerðar einróma. Og því meir, sem á verkfallið leið, því ágæt- ara og traustara varð samstarfið. A þessari einingu strönduðu allar tilraunir andstæðinganna til að sundra verkfallsmönnum og slá niður verkfall þeirra. Bardagaaðferð ofstækismannanna í hópi atvinnurekenda og stjórnmála- manna þeirra var aðallega þríþætt. I fyrsta lagi sú stefna þeirra að knýja verkfallsmenn til ósigurs með löngu verkfalli og horfa ekki í stund- arhagsmuni. í öðru lagi með áróðri í því skyni að sundra verkfallsmönnum. Að þessu ieyti var skipulögð hatröm áróðurs- herferð gegn fagfélögunum og með- limum þeirra og látið heita svo, að samningar strönduðu á þeim. Framhald á bls. 78. VINNAN og verkalýðurinn 53

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.