Vinnan og verkalýðurinn - 01.05.1955, Blaðsíða 25

Vinnan og verkalýðurinn - 01.05.1955, Blaðsíða 25
f'élacj Ll^aélaamkja 20 ana Félag bifvélavirkja í Reykjavík var stofnað 17. janúar 1935 og átti því sitt tvítugsafmæli þennan dag í jan. s.l. Fyrstu stjórn félagsins skipuðu Eirík- ur Gröndal, formaður, Nicolai Þor- steinsson, gjaldkeri, og Óskar Krist- jánsson ritari. Stofnár þessa félags var að ýmsu leyti merkisár m.a. fyrir það, að þá fengu bifvélavirkjar rétt sinn að lög- um sem iðnaðarmenn. En á undan- gegnum árum höfðu bifvélavirkjar, jafnt vinnukaupendur sem vinnu- seljendur háð sameiginlega baráttu fyrir löggildingu iðninnar. Þessi sameiginlega réttindabarátta varð orsök þess að meistarar og svein- ar voru sameiginlega stofnendur fé- lagsins og nutu hvorir tveggja rétt- inda innan félagsins fyrstu starfsár þess. Brátt kom þó í ljós, að meistar- arnir urðu þar hagsmunabaráttu Eiríkur Gröndal, fyrsti formaður félagsins. Valdimar Leonhardsson, formaður félagsins síðan 1937. sveinanna fjötur um fót. Og þar kom, að sveinarnir, sem voru í meiri hluta, tóku sig til og losuðu félagið við atvinnurekendurna. Þetta gerðist árið 1937. Nokkru síðar var félagið tekið í Al- þýðusamband íslands. Sama ár nær það sínum fyrstu kjarasamning- um, eftir fimm vikna harðvítugt verk- fall og fær sig viðurkennt sem samn- ingsaðila hjá atvinnurekendum. Þessa fyrstu eldraun stóðust samtök bif- vélavirkja af hinni mestu prýði. Svo margþætt er barátta Félags bifvélavirkja á tuttugu ára starfsferli þess, að of langt mál væri að rekja þá sögu í einstökum atriðum hér. En rétt er þó að minnast á verkfallið 1949 er stóð í 72 daga og lyktaði VINNAN og verkalýðurinn 63

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.