Vinnan og verkalýðurinn - 01.05.1955, Side 37
Það hefir verið viðurkennt af alheimi, að alþjóðlega undirskriftasöfnunin
undir Stokkhólmsávarpið 1951 átti mestan þátt í því að ekki kom til notkunar
kjarnorkuvopna í Kóreustríðinu. — Þessi staðreynd er mikilsverð uppörvun
Eyrir friðarvini heimsins, þegar þeir leggja nú til allsherjar liðssöfnunar gegn
kjarnorkustríði. — Engin þjóð hefir gildari ástæðu en vér íslendingar til að
gera för friðarsinna góða hér um land og fjölmenna til undirskriftanna.
Óneitanlega er þessi
mynd óhugnanlegur
falstónn í hörpu vorsins.
þegar jörðin iðar af
grænu lífi, sól hækkar
göngu sína og nóttin er
að verða skuggalaus.
Hvers vegna er þá verið
að bregða upp svona
ömurlegri mynd eyði-
leggingar og dauða, mitt
í sigurgöngu okkar ís-
lenzka vors?
Vegna þess að Híró-
síma í Japan átti líka
ekki síður en við, sitt
blómstrandi vor og
frjófa sumar, áður en
'iernaðarauðvald Banda-
ríkjanna lét falla á stað-
inn fyrstu kjarnorku-
sprengjuna, sem skyldi
eftir sig hundruð þús-
unda dauðra og hel-
sjúkra manna þ. á m.
barna og kvenna — og
brunagíg þar sem áður
voru bústaðir manna,
)g frjó jörð. Kjarn-
arkusprengjan, er féll á
Hírósíma er þó harla lít-
ilvirk hjá þeim kjarn-
mku- og vetnissprengj-
um, sem síðan hafa ver-
ið framleiddar. Með
hverri einni þeirra er
unt að útrýma öllu lífi
í höfuðstað íslands og
nágrenni. Tilvera ísl.
þjóðarinnar liggur við
að stýrt verði hjá kjarn-
orkustyrjöld. Framtíð
íslenzkra vordrauma og
íslenzkrar sumargleði er
í húfi. íslenzk tilvera.
íslenzku þjóðinni ber
því að skipa sér sem
heild í fylkingu með
friðaröflum heimsins.
Enginn góður íslending-
ur má láta undir höfuð
leggjast að skrifa nafn
sitt undir Vínarávarpið:
kröfuna um bann við
notkun kjarnorkuvopna.
Kröfuna um frið.
Það minnsta, sem við getum gert fyrir ísland, fyrir okkur sjálf, er að skrifa
nöfn okkar undir kröfuna um frið: VÍNARÁVARPIÐ.
VINNAN og verkalýðurinn 75