Vinnan og verkalýðurinn - 01.05.1955, Page 39

Vinnan og verkalýðurinn - 01.05.1955, Page 39
ert eftir aðferðum nazistanna á þeirra blómaskeiði. Hin lýsandi fordæmi Kínverja, Kóreu og Viet-Nam hafa fært þessum kúguðu þjóðum sönnun þess að kúgararnir eru ekki ósigrandi. Það er því aðeins tímaspurning þang- að til þessum þjóðum tekst að velta að fullu af sér okinu og taka að byggja upp sín lönd til hagsbóta fyrir íbúana sjálfa. Það var einstaklega fróðlegt að bera saman skýrslur þingfulltrúanna frá austan og vestan tjalds ríkjunum. í Alþýðulýðveldunum, Rússalandi og Kína hefur uppbyggingin eftir stríðið orðið ótrúlega hröð, það hefur tekizt þar á undra skömmum tíma, að skapa fólkinu mannsæmandi kjör og útrýma atvinnuleysi. íbúðabyggingar og hús til almenningsþarfa eru geysi- miklar og stöðugt vaxandi, enda er þörfin mikil í þessum stríðshrjáðu löndum. Af ræðum og skýrslum sem þarna voru fluttar af fulltrúum frá Vestur- Evrópu mátti glöggt sjá hvernig Ame- rískt fjármagn er stöðugt að ná fast- ari tökum á efnahagslífi þjóðanna. Afleiðingar þessa eru m. a. í bygg- ingamálum að íbúðabyggingar fyrir lágtekjufólk fullnægja hvergi nærri þörfinni, en bygging flugvalla og annarra hernaðarmannvirkja eykst hröðum skrefum. Amerískar vörur þrengja sér inn í markaði þessara landa og torvelda þar með sölu á heima unnum vörum. Þetta skapar at- vinnuleysi og versnandi afkomu vinn- andi stéttanna, samfara allskonar braski og spákaupmennsku. Því miður er ekki rúm hér til að geta þeirra ályktana, er þarna voru gerðar, en þær voru margar. Einnar verður þó að geta, sem var borin fram af Frökkum, Þjóðverjum, ítöl- um, Pólverjum og Tékkum, hún var á þessa leið í stuttu máli: Skorað var á allan verkalýð Evrópu og verkalýðsfélög, að boða til ráð- stefnu með því markmiði: Að mótmæla endurhervæðingu Þýzkalands og endurvakningu þýzks hernaðaranda. Til mótmæla gegn undirbúningi á atómstyrjöld. Til varnar gegn árásum á lifskjör og lýðræðislegan rétt verkalýðsins. Fyrir sameiginlegu öryggi. Fyrir afvopnun og síðast en ekki sízt fyrir friði. Frá alþjóðaþingi byggingariðnaðar- manna í Eerlín. Frá hægri til v.: Zóphónías Jóns- son, Gunnar Össurarson.

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.