Bergmál - 01.12.1952, Side 8

Bergmál - 01.12.1952, Side 8
Bergmál --------------------- þeim hjónunum, en grammó- fónninn glumdi án afláts. „Monika hefir boðið til sín nokkrum kunningjum í kvöld,“ sagði frú Sonja. „Það er mjög skiljanlegt,“ svaraði ég. „Hún hlýtur að vera orðin fullvaxta núna.“ „Já, hún er tuttugu og fimm í dag,“ sagði Walter. Við gengum inn í hina stofuna og horfðum á dansinn. Þarna var glæsilegur hópur, glaðra og ánægjulegra ungmenna í sam- kvæmisklæðnaði. Monika kom til mín. „Sæll, frændi,“ sagði hún. Ég verð að viðurkenna það, að ég varð snortin af fegurð hennar. Þarna stóð skyndilega frammi fyrir mér fullvaxta dama í bláum samkvæmiskjól alsettum hvítum perlum. Axlir hennar og handleggir voru naktir og bakið að miklu leyti. Barmurinn var hvelfdur. Hárið mikið og fagurt, mjög ljóst. „Þú ert sannarlega orðin fullkomin dama, Monika,“ sagði ég. Hún hló glaðlega. „Og frændi er orðinn bæði virðulegur og glæsilegur,“ sagði hún. „Ég hefi alltaf haft dálæti á þeim, sem farnir eru að grána í vöngum. Því miður verður -----------------Desember pabbi ekkert gráhærður, hann missir bara hárið.“ „Jæja, hvernig lízt þér á hana?“ spurði Sonja. „Mér finnst ég sjá ofsjónir,“ svaraði ég. Monika leit tvíræðu augna- ráði til móður sinnar. Svo tók hún undir handlegg mér. „Nú kemur tangó,“ sagði hún, „eigum við að dansa?“ Ég dansaði við hana. Hún var létt, sem fjöður í fangi mínu og er ég snart nakið bak hennar, var sem færi um mig rafmagns- straumur. Hún var sannarlega töfrandi fögur. Hún leit beint í augu mér, eins og ögrandi. „Má ég þúa þig?“ spurði hún. Ég kinkaði kolli. „Þú talar þannig, að maður gæti haldið að þú værir gamal- dags, — frændi!“ „Og þú — þú ert alveg full- kominn fulltrúi nýja tímans — ekki satt?“ Hún yppti öxlum. Hún lokaði augunum andartak, en svo leit hún aftur á mig. „Manstu, þegar þú varst hér síðast?“ spurði hún. „Það eru víst fjórtán ár síð- an, er það ekki? Þú barst mig upp í herbergið mitt og lagðir mig í rúmið, mannstu það?“ Ég gat ekki stillt mig um að 6

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.