Bergmál - 01.12.1952, Síða 16

Bergmál - 01.12.1952, Síða 16
Bergmál ----------------- er að,“ segi ég við hana. „Hún lifir; hafið engar áhyggjur; þér ættuð að hvíla yður, klukkan er að verða tvö.“ „En þér vekið mig, ef eitthvað ber upp á?“ „Já, já.“ Gamla konan fór og systurnar hurfu til herbergis síns. Það var búið um mig í stof- unni. Jæja, ég fór í rúmið, en gat ekki fest svefn, og það var varla einleikið, því að ég var mjög þreyttur. Ég gat ekki hætt að hugsa um sjúklinginn minn. Að lokum stóðst ég ekki lengur mátið, ég reis upp allt í einu og ég sagði við sjálfan mig: „Bezt að fara og sjá hvernig sjúklingn- um líður.“ Herbergið hennar lá að stofunni. Ég fór fram úr og opnaði dyrnar varlega — og því- líkan hjartslátt, sem ég hafði! Ég gáði inn: vinnukonan svaf með munninn galopinn og meira að segja hrjótandi — ræfillinn að tarna! En sjúkling- urinn sneri að mér í rúminu og breiddi opinn faðminn á móti mér, veslings stúlkan. Ég gekk til hennar ... og þá opnaði hún allt í einu augun og starði á mig. „Hver er þetta? Hver er þetta?“ Ég varð vandræðalegur. „Verið rólegar, ungfrú,“ segi ég, „ég er læknirinn; ég kom til að sjá, hvernig yður liði.“ „Þér, læknirinn?“ „Já, ég er hann; -------------- Desember móðir yðar sendi eftir mér til þorpsins; það er búið að taka yður blóð, ungfrú; farið þér nú að sofa og eftir einn til tvo daga, ef guð lofar, getið þér farið á fætur aftur.“ Já, já, læknir, lát- ið mig ekki deyja — ekki deyja.“ „Því segið þér þetta? Guð hjálpi yður!“ Hún er búin að fá hita aftur, hugsa ég með mér; ég þreifaði á slagæðinni, jú, hún var búin að fá hita. Hún leit á mig og tók svo í hönd mína: „Ég skal segja yður, hvers vegna ég vil ekki deyja, ég skal segja yður ... Við erum ein núna. En segið þér bara ... segið þér bara ekki ... ekki neinum ... Hlust- ið ...“ Ég laut niður að henni; hún hreyfði varirnar við eyra mitt, hár hennar snart kinn mína. Ég skal segja þér, að ég varð alveg utah við mig — og fór að hvísla ... Ég skildi ekk- ert, hvað hún var að fara .. . Hún var með óráði! ... Hún hvíslaði og hvíslaði, en svo hratt ,alveg eins og það væri ekki rússneska; að lokum hætti hún og hneig með skjálfandi höfuðið niður á koddann og á- minnti mig með fingrinum: „Munið það, læknir, að segja alls engum.“ Ég róaði hana einhvern veginn, gaf henni að drekka, vakti vinnustúlkuna og fór.“ 14

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.