Bergmál - 01.12.1952, Qupperneq 26
Desember
Bergmál ----------------------
komið má vera, að við reynum
að afsaka mistök okkar og að-
gerðarleysi með erfiðum heim-
ilishögum eða öðru þess hátt-
ar.
Flest verðum við að velja
milli þess að vinna fyrir brauði
okkar eða svelta ella. Af því
leiðir, að sú vinna, sem undir
slíkum aðstæðum fellur okkur
í hlut, er langoftast ekki sú, sem
við erum bezt fallin til að eðl-
isfari.
Þetta atriði eitt út af fyrir
sig, er nægilegt til að skýra að
verulegu leyti, hversu fám okk-
ar tekst að láta áform okkar
verða að veruleika. I fyrstu er
það fastur ásetningur okkar að
missa ekki sjónar af markinu,
heldur vinna að því með öllum
ráðum, nota kvöldin, frídagana
og sumarleyfin til þess að vinna
að framgangi þeirra.
En vinnudagur frá kl. 9 til 5 á
daginn er ótrúlega þreytandi,
og það þarf nærri ofurmannlega
sjálfsafneitun til þess að vinna,
þegar allir aðrir skemmta sér.
Án þess við verðum þess vör,
drögumst við inn á það lífsvið-
horf og tökum upp það líferni,
er einkennir þá, sem haldnir eru
sjálfseyðileggingarhvöt — löng-
uninni til þess að leggja
í rúst framkvæmd okkar eig-
in drauma og vona um af-
rek og sigra. Við drögnumst
gegnum lífið án þess að leggja
fram skyldugan og eðlilegan
skerf okkar til samfélagsins, án
þess að uppgötva hvað í okkur
sjálfum býr, án þess að hafa
nýtt nema örlítið brot af hæfi-
leikum okkar.
Flest dyljum við umheiminn
hrakfara okkar og ósigra, en bezt
dyljum við slíkt fyrir sjálfum
okkur. Það er sem sé ekki svo
mjög erfitt að láta sér sjást yf-
ir þá staðreynd, að við gerum
miklu minna en við gætum,
framkvæmum sáralítið af jafn-
vel hinum varlegustu áformum
okkar og aldrei allt það, er okk-
ur hafði dreymt um.
Ein ástæða þess, hversu auð-
velt það er að dylja sjálfan sig
mistökum, ósigrum og aðgerð-
arleysi, er sú, að svo virðist sem
við komumst að þegjandi, gagn-
kvæmu samkomulagi við vini
okkar og kunningja: „Minnstu
ekki á mín mistök við mig, þá
skal ég ekki svo mikið sem gefa
í skyn, að þú gerir ekki allt það,
er ég get framast vænzt af þér.“
Því miður eru sjúkdómsein-
kenni sjálfseyðileggingarhvat-
arinnar ekki jafn augljós og t. d.
mislinga. En því miður eru
24