Bergmál - 01.12.1952, Page 28
B E R G M Á L
leika og byggjast á verðleikum
og sanngjörnu sjálfsmati. Hér er
átt við hinn uppáþrengjandi og
áberandi einstakling, er krefst
þess, að hann sé tekinn
sem stórt, elskulegt barn, óá-
byrgur, ekki ýkja hugsunarsam-
ur, en framúrskarandi skemmti-
legur og ómissandi á öllum
gleðifundum, enda lætur hann
sig þar sjaldan vanta.
Þessu fólki er nauðsynlegt
að vera aðlaðandi á sama hátt
og þrælkunarfangi er nauð-
beygður til þess að berja grjót.
Og það er einnig nauðbeygt til
þess að vera sífellt elskulegra og
ísmeygilegra, glamurslegra og
fyndnara til þess að vega á móti
dvínandi aðdráttarafli hins inn-
antóma persónuleika síns.
Hér hafa verið nefnd nokkur
dæmi þess, hvernig mörg okk-
ar eyðum tímanum í tilgangs-
laust hringl, eða sinnum störf-
um, sem veita þeim takmörkuð
tækifæri til þess að nýta og efla
hæfileika okkar. Enn aðrir vinna
störf sín hangandi hendi eða
jafnvel eyða mestum frítíma og
vinnutíma, ef þeir mega, í
draumóra. Og svo eru allir hin-
ir, sem enn verr eru á vegi stadd-
ir.
Hvert sem sýndarmarkmið
eða lífsviðhorf þeirra manna,
---------------- Desember
sem nú hefur verið lýst að
nokkru, kann að vera, er ljóst,
að hin raunverulega ætlan, oft-
ast dulvituð, sem ræður lífi
þeirra að meira en hálfu, er
sjálfseyðileggingarhvötin, þ. e.
eyða tíma sínum á tiltölulega
gagnslausan eða beinlínis skað-
legan hátt, þannig að ekki verði
unnt að sinna að neinu gagni
þeim viðfangsefnum, sem hlut-
aðeigandi er fær um að vinna
og í aðra röndina þráir að helga
krafta sína.
í stuttu máli, ætlunin er sú,
að eyðileggja líf sitt og snúa öllu
á þann veg, að ekki verði við
bjargað.
Þótt undarlegt megi virðast,
er það naumast einn af hverju
hundraði manna, er ekki leggja
stein í sjálfs sín götu í viðleitni
þeirra til velfarnaðar og ósvik-
inna afreka. Til þess að skilja
þetta er nauðsynlegt að athuga
nánar, það sem kalla mætti laun
þess að láta sér mistakast og í
sumum tilfellum fara alveg í
hundana.
Hugsum okkur t. d., að við
reynum eitthvað rétt nægilega
mikið til þess að geta sagt, að
við höfum reynt, en árangurs-
laust, því að okkur hafi skort þá
hæfileika er til þurfti. Þá get-
um við sagt í öllu lítillæti og
26