Bergmál - 01.12.1952, Page 29
1952
þó sigri hrósandi, að við höfum
reynt, en því miður hafi það
ekki tekizt, og ekkert sé um ann-
að gera en gefast upp. Slíkt er
mjög áhrifaríkt, og erfitt að
sanna, að við höfum rangt fyr-
ir okkur. Síðan getum við í ró
og næði tekið okkur fyrir hend-
ur að gagnrýna þá, sem hafa
reynt það sama, en ekki gefizt
upp.
Án þess að hafa unnið nokk
urt verk á þann hátt, að ágætt
megi teljast, eða náð í einhverju
einu nokkurri fullkomnun, get-
ur það lof er við hefðum getað
uppskorið, það fé, er við hefð-
um getað borið úr býtum, þau
snilldarverk, er við hefðum get-
að skapað, tekið á sig þann svip,
í dagdraumum okkar og í aug-
um þeirra sem leggja trúnað á
okkar túlkun málsins, að þetta
allt sé miklu meira virði, en
raunverulegur árangur.
Og við skulum veita því at-
hygli, að á þennan hátt höfum
við forðast allan þann sársauka,
alla þá baráttu og auðmýkingu,
sem alla jafnan fylgir raun-
hæfu starfi á vettvangi lífsins.
Þetta dagdraumafólk þarf aldrei
að sjá þann hlut fyrirlitinn eða
misskilinn, er það sveittist við
að skapa. Það þarf aldrei að
mæta harðvítugri gagnrýni,
------------------ Bergmál
aldrei að þola meinfýsni þeirra,
sem öfundast yfir velgengni
annarra. Og það sem er mikil-
vægast, það þarf aldrei að horf-
ast í augu við ósamræmið milli
þess, er því hefir raunverulega
tekizt að gera og hins, sem það
hafði vonast til að inna af hönd-
um.
Enn er það, að séu mistök okk-
ar ekki því hrapalegri, erum
við venjulega öllu skemmtilegri
persónur að umgangast en þeir,
er meira leggja á sig við vinnu.
Hinn athafnasami maður hefir
minni frítíma, er sjaldan glað-
vær að tilefnislausu, þar eð hann
hvorki dulvitað né er bein-
línis á snöpum eftir flótta-
leiðum frá ófullnægjandi lífi.
Hann er því í engri þörf fyrir
að vinna hylli annarra fremur en
verkast vill. Hann kann að hafa
orð á sér fyrir að vera óþjáll og
stuttur í spuna nema í vinahóp.
En þrátt fyrir alla þessa
sýndarumbun hins misheppnaða
manns, eru þó laun ósvikins á-
rangurs og afreka margfalt
meiri. Hið lítilmótlegasta verk
vel unnið, færir þegar í stað
meiri ánægju en hinn misheppn-
aði maður nýtur á langri ævi.
Vitneskjan um það að vera
mældur og veginn á mælikvarða
raunverulegra óloginna athafna,
27