Bergmál - 01.12.1952, Qupperneq 32
Desember
Bergmál -----------------------
er mestu máli skipta í þessu
sambandi:
1. Fyrsta æfingin er sú, að
segja ekkert í eina klst. daglega
nema sem svar við beinum
spurningum. Þetta skyldi gert
meðal þess fólks, sem við venju-
lega umgöngumst. Svarið spurn-
ingunum beint og án allra útúr-
dúra. Þetta reynist flestum
býsna erfitt. Flestir svara án
þess að vita nákvæmlega hvað
þeir ætla að segja, gefast upp í
miðju kafi, byrja á nýjan leik,
enda svo með því að þagna og
hugsa málið og koma loks með
sæmilega skýrt svar.
2. Temjið ykkur að hugsa
hálftíma á dag, eingöngu um
eitthvað eitt, hvað svo sem það
nú er. Byrjið á viðfangsefni,
sem þér hafið áhuga fyrir.
3. Skrifið sendibréf án þess að
nota nokkru sinni eftirfarandi
orð: ég, mig eða minn.
4. Talið í fimmtán mínútur
daglega, án þess að nota orðin:
ég, mig eða minn.
ö.Skrifið bréf, sem er hlutlaus
frásögn, nákvæm og ýkjulaus,
helzt um viðfangsefni, sem þér
hafið leyzt vel af hendi.
6. Nemið staðar á þröskuldi
herbergis, sem fullt er af fólki,
og gerið yður grein fyrir afstöðu
yðar og sambandi til hvers og
eins, sem í herberginu er stadd-
ur. Þetta er gamalt ráð og gagn-
legt, ef þess er gætt að nota það
ekki til þess að vera yfirborðs-
legur eða sleikjulegur, heldur
gera sér glögga grein þess, með
hverjum við getum helzt átt
samleið.
7. Þessu næst má reyna gamla
aðferð, sem mjög var í tízku á
17. öld í Frakklandi. Látið nýja
kunningjann tala sífellt um
sjálfan sig, án þess þó að láta
hann verða þess varan, að þér
gerið þetta af ásettu ráði. Þetta
er gagnlegt til þess að venja
okkur á að taka tillit til ann-
arra, en það gerir okkur einn-
ig fært að kynnast hinum nýja
kunningja og mynda okkur
xskoðun um það, hvort við vilj-
um kynnast honum frekar og
ef svo er, þá hvað við eigum
sameiginlegt.
8. Þessi æfing er fólgin í því, að
gera hið gagnstæða við það, sem
hér á undan var nefnt; þ. e. tala
eingöngu um sjálfan sig, án þess
að grobba, kvarta eða láta á-
heyrendum okkar leiðast. —
Þetta mun fljótlega venja jafn-
vel hinn sjálfumglaðasta og
sjálfhælnasta mann, af þeim
vana sínum að tala mest um
sjálfan sig.
9. Ef þér hafið vanið yður á
30