Bergmál - 01.12.1952, Síða 33

Bergmál - 01.12.1952, Síða 33
19 5 2 einhver orðatiltæki eða setn- ingar, sem þér notið í tíma og ótíma, t .d.: ég meina, sko, o. s. frv., þá farið til einhvers góðs vinar yðar og biðjið hann að gefa merki í hvert sinn, er þér notið þessi steinrunnu, merk- ingarlausu orðasambönd eða orð. 10. Gjörið nákvæmlega tíma- áætlun um störf yðar fyrir 2 tíma dagsins og fylgið henni skilyrðislaust og út í yztu æs- ar. 11. Hér kemur æfing, sem mörgum mun þykja einkenni- leg og vera erfið í framkvæmd og einnig finnast hún nokkuð út í loftið. En það er einmitt hin gerræðisfulla þvingun, sem hún hefir í för með sér, er gefur henni gildi. Farið 20 mílur frá heimili yðar án þess að taka leigubíl. Verið 12 stundir mat- arlausir, ef heilsa yðar leyfir það. Fáið ykkur að borða á ein- hverju veitingahúsi, sem er af- skekkt og lítið sótt. Segið ekki aukatekið orð, nema sem svar við spurningum. Verið á fótum heila nótt og vinnið. Þetta síð- asta átriði er mjög gagnlegt. Vinnið hljóðlega og án afláts og látið ekki undan löngun yðar til að ganga til svefns. Aðeins þeim, sem þetta hafa gert, er ------------------ Bergmál ljóst, að til eru ósnortnar auð- lindir hugsana og hæfileika 1 sálardjúpum okkar, sem er sjaldan hreyft við, sökum þess hversu vön við erum að gefast upp, strax er við finn- um til þreytu. 12. Reynið í einn dag að verða við hverri einustu s-anngjarnri bæn, sem þér eruð beðinn. Þér munuð komast að raun um, að þetta færir yður ótrú- lega nærri raunverulegum vandamálum lífsins og kemur yður í kynni við marga athygl- isverða einstaklinga og hagi þeirra. Bjössi litli vissi ekki að mamma hans gæti heyrt til hans og leyfði sér því að ausa úr sér heilu safni af fúk- yrðum. „Komdu hingað," kallaði mamma hans. Og Bjössi litli kom með tregðu. Hann bjóst ekki við neinu góðu. „Ég vona það, góði minn, að þú lát- ir aldrei nokkurn mann heyra annað eins til þín framar." „Já, en mamrna," sagði Bjössi ves- ældarlega. „Shakespeare notar þessi orð.“ „Þá máttu aldrei leika þér við hann framar." ★ Það er yfirleitt hættulegra að gera mönnum greiða, heldur en hitt, að gera þeim til bölvunar. 31

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.