Bergmál - 01.12.1952, Qupperneq 36
B E R G M Á L -------—--------—- DeSEMBER
Þetta er SAMUEL GOLDWYN kvik-
myndaframleiðandi frá Hollywood. —
Hann er sagður hafa unnið meira og
minna síðastliðin 14 ár við undirbún-
ing kvikmyndarinnar um H. C.
Andersen.
Sam Goldwyn hefir unnið að
undanfarin 14 ár. Þessi kvik-
mynd er þegar orðin umtöluð
um allan heim, vegna mótmæla
Dananna og óánægju yfir því
að Danny Kaye fari með aðal-
hlutverkið.
Frumsýning kvikmyndarinn-
ar á að fara fram núna um jól-
in á tveim stöðum samtímis, eða
í Grauman’s Chinese Theatre í
Hollywood og einnig í Astor-
Teatre í New York.
Það er gert ráð fyrir, að um
400 milljónir manna í heiminum
muni vilja sjá þessa kvikmynd
og þarf ekki að efa það, að frægð
H. C. Andersens verður mun
meiri eftir en áður, auk þess,
sem heimaland hans, Danmörk,
nýtur jafnframt góðs af þessari
einstæðu auglýsingu.
Danir hafa nú loks sætt sig við
þá tilhugsun, að grínleikarinn
Danny Kaye leiki hinn dáða H.
C. Andersen, einkum eftir að
fyrrverandi forsætisráðherra
þeirra, Hans Hedtoft hafði séð
myndina, hann var fyrsti Dani,
sem fékk að sjá hana fullgerða,
og sagði eftir á, að hún væri:
„töfrandi fögur og heillandi lit-
kvikmynd, sem gerð er af ást og
fullri virðingu fyrir voru mikla
æfintýraskáldi.“
Danny Kaye syngur níu
söngva í myndinni og hann
syngur þá flesta sitjandi (að-
eins tvo söngva standandi) og
án allra skrípaláta og tilgerðar,
sem hann er þekktastur fyrir,
enda er þetta fyrsta kvikmynd
alvarlegs eðlis, sem hann hefir
leikið í.
DANNY KAYE er fæddur
18. janúar 1913 í New York og
heitir David Daniel Kominsky.
Faðir hans var nefnilega rúss-
neskur hestatamningamaður,
34