Bergmál - 01.12.1952, Síða 37
1952
sem fluttist búferlum til Banda-
ríkjanna og gerðist dömuklæð-
skeri í New York.
Danny varð snemma að byrja
að vinna fyrir sér og lagði stund
á margt, t. d. að selja ís, selja
líftryggingar, dansa og síðar
syngja, en náði hvergi veruleg-
um árangri fyrr en hann kynnt-
ist Sylviu Fine. Hún sá strax að
hann hafði sérstæða hæfileika
og samdi fyrir hann vísur, sem
lagði grundvöllinn að frægð
hans.
Þau giftust, en bjuggu stutta
hríð saman og skildu brátt aft-
ur, en þrátt fyrir það hélt hún
áfram að semja vísur fyrir hann.
Danny Kaye hafði leikið í
ýmsum leikhúsum bæði í Ame-
ríku og Englandi í meira en tíu
ár áður en honum tókst að
vekja nokkra verulega athygli,
og það er ekki fyrr en árið 1944,
sem hann „slær í gegn“ svo um
munar. Nú er hann orðinn
heimsfrægur og talinn einn
fremsti grínleikari heimsins.
Suraum gagnrýnendum hefir
fundist að hann væri of galsa-
fenginn á leiksviði, jafnvel svo,
að nálgaðist „hystery“, en aðrir
telja hann afburða snilling. Hon-
um er ekki stirt um tungutak,
eins og þeir vita, sem hafa séð
hann í kvikmyndum. Sagt er að
----------------- Bergmál
hann geti sungið 150 til 175 orð
á mínútunni.
Danny Kaye segir aldrei neina
fyndni á leiksviðinu — hann
klæðist aldrei neinum sérstök-
um leiksviðsbúningi — er venju-
lega í gráum fötum —• málar sig
aldrei í andliti — þekkir ekki
nótur — og spilar ekki á nokk-
urt hljóðfæri. — En hann get-
ur sungið og blístrað, svo að á-
heyrendur verða að halda um
magann til að rifna ekki af
hlátri.
Amerískur herforingi var nokkra
daga í heimsókn þar sem iðulega voru
gerðar loftárásir. Hann veitti því at-
hygli, að hermennirnir á þessum stað,
létu sér mjög annt um einhvern Jack-
son. Þegar loftárás hófst, hugsuðu
þeir fyrst og fremst um það, að Jack-
son kæmist sem fyrst í loftvarnaskýl-
ið, áður en þeir hugsuðu um sjálfa
sig, og þegar loftárásin var hjá liðin
hrópaði hver eftir annan. „Hvernig
líður þér, Jackson," eða „er Jackson
ekki ómeiddur." Herforingjanum
fannst þetta einkennilegt og spurði
einn hermanninn hverju þetta sætti.
„Ég skal segja yður það,“ svaraði her-
maðurinn. „Þessi Jackson skuldar
okkur flestum meira og minna af
peningum."
★
Hið illa hrósar oft sigri, en það
sigrar aldrei.
Flestir menn umgangast minningar
sínar af olltof mikilli léttúð.
35