Bergmál - 01.12.1952, Síða 41

Bergmál - 01.12.1952, Síða 41
1952 til vill hræddur vegna dauða- kyrrðarinnar í húsinu og var hann kominn að því að steypast bein’t fram af leiksviðinu, er dökkklædda konan veitti hon- um athygli og leiddi hann aftur á sinn stað í söngflokknum. Að síðustu var sungið: „Heims um ból“, og tókum við allir und- ir þann sálm með börnunum, svo að djúpar bassaraddir okk- ar kæfðu næstum viðkvæmar barnsraddirnar. Það var léttir að því að syngja. Hinn einkenni- legi spenningur og gleðin yfir því, að heyra söng þessara litlu barna, hafði næstum borið okk- ur ofurliði. Er við vorum að enda við þennan gullfallega jólasálm, kvað skyndilega við, skerandi og hjáróma org loftvarnarsír- enu. Guð minn góður! Loftárás núna,“ hvíslaði ég að félögum mínum. Við stóðum upp og ætl- uðum að fara, en hikuðum við. Börnin héldu áfram að syngja, eins og ekkert væri. Rafmagns- ljósin voru tekin af, og ekki heyrðist hósti né stuna í salnum, nema mjúkar barnsraddirnar, sem heyrðust um allan salinn þrátt fyrir látlaus vein síren- unnar. Einn hermannanna kveikti á ----------------- BergmAl vasaljósi sínu og beindi geisl- anum að börnunum, sem nú hnipruðu sig saman í þéttan hnapp og sungu áfram jólsálm- ana. Einn af öðrum kveikti nú á vasaljósi sínu alls staðar í saln- um, þar til litli barnakórinn okkar baðaði í ljóshafinu. Við fórum að syngja á ný, með börn- unum, og yfirgnæfðum að mestu sírenuvælið og jeppa- drunurnar úti fyrir. Er einn sálmur hafði verið sunginn, þustu hermennirnir af fremstu bekkjunum upp á leik- sviðið og föðmuðu börnin að sér. Vegna hávaðans úti fyrir og óttans við loftárásina, voru sum börnin nú farin að hágráta, og hermennirnir margir hverjir, hrærðir af jólasöngvunum og heimþrá grétu með þeim. Ég var sjálfur með grátstafinn í kverkunum. Dökkklædda konan og her- mennirnir, sem komnir voru upp á leiksviðið, fóru nú að hjálpa börnunum til að komast út úr húsinu um bakdyr og fara síðan með þau í loftvarnarbyrg- ið. En við félagarnir, Marcus, Wilmore og ég, gengum út um aðaldyrnar, og síðan í humátt á eftir hópnum til loftvarnarbyrg- isins. Ég var undarlega glaður. 39

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.