Bergmál - 01.12.1952, Qupperneq 43
HEILABROT:
1. Ef þú ættir sandköku, sem
væri að rúmmáli 5 sinnum 4
sinnum 5 þumlungar og jafn-
framt ættir þú rúgbrauð, sem
væri að rúmmáli 5 sinnum 5
sinnum 4 þumlungar, og ef
við gerum svo ráð fyrir að þú
gætir gift þau sandkökuna
og rúgbrauðið og þau eign-
uðust því næst á sínum tíma
afkvæmi, sem héti rúgkaka.
Hve stór yrði sú rúgkaka, ef
hún yrði að meðaltali jafn-
stór og foreldrarnir?
2. Hvort er ódýrara að kaupa
10 egg fyrir 20 krónur og 10
aura, eða að kaupa 12 egg
fyrir 30 krónur og 60 aura?
3. Hvaða orð er þetta: GALIN-
HERA?
4. María ræktar aðeins gulræt-
ur í garðinum sínum og þær
eru samtals 6789. Hún eyðir
hálfri klukkustund við að
setja hverja gulrót niður,
hálfri klukkustund við að
vökva hverja gulrót og hálfri
klukkustund við að taka upp
hverja gulrót. Hve margar
klukkustundir mundi það
taka Margréti að rækta jafn-
margar gulrætur í sínum
garði, ef hún er helmingi
seinvirkari en María?
5. Einn áttundi hluti síma-
staurs er niðri í jörðinni, en
sá hluti hans, sem er ofan-
jarðar mælist 6 fet og 5
þumlungar. Hve langur er
símastaurinn?
6. Hér á eftir er bókarheiti, en
úr því hafa allir sérhljóðarn-
ir verið teknir burtu, en allir
samhljóðarnir skildir eftir og
eru þeir í réttri röð:
RLNDSÐR. Hvaða bókar-
heiti er þetta?
7. Ef þessi orð hér á eftir væru
saman í orðabók, í hvaða röð
ættu þau þá að standa: Af-
klæða, Afhneppa, Afkimi,
Afhenda, Afklippa, Afhýða?
8. Verðlaunaheilabrot:
Ef að ég færi gangandi frá
Akureyri til Dalvíkur og
gengi með 5 kílómetra hraða
á klukkustund, þá væri ég
10 mínútum lengur á leið-
inni, en ef ég gengi sömu leið
41