Bergmál - 01.12.1952, Síða 45

Bergmál - 01.12.1952, Síða 45
1952 milli himins og jarðar, nema bréfið, og mér fór að líða ekki ósvipað og þessum náungum í bíómyndum, þegar konurnar þeirra laumast út í frístundum sínum á stefnumót með fast- eignamangara eða öðrum þess- háttar fuglum. Klukkan 9 þá um kvöldið mundi ég hafa dottið úr stóln- um mínum af eintómri undrun, ef ég hefði ekki staðið, þegar Mabel sagði, og lét sem ekk- ert væri: „Hvers vegna skreppurðu ekki út fyrir kvöldkaffi og færð þér einn léttan?“ „Ég var of dolfallinn til þess að mæla orð frá vörum. „Ég veit, að þér þykir gaman að rabba við strákana,“ hélt hún áfram, „og ég er viss um, að það er þægileg tilbreyting eft- ir að hafa setið á hundleiðin- legri skrifstofu allan daginn.“ Ég settist á stól, til þess að ég dytti ekki á gólfið. „Þu þarft að skemmta þér dá- lítið. Engan karlmann langar til þess að sitja tjóðraður heima allt kvöldið. Meðan þú ert úti, skal ég búa til indælis kvöld- kaffi handa þér.“ Henni varð litið framan í mig og hún hætti. „Langar þig ekki til að ...?“ ----------------- Bergmál Ég sótti í mig veðrið og þrum- aði: „Kona góð, við höfum ver- ið gift í sex langa mánuði. Þann tíma hef ég verið fyrirmyndar- eiginmaður. Allan þann tíma hef ég aldrei skilið þig eftir eina heima, meðan ég færi út og léki lausum hala um bæinn með fé- lögum mínum. Þeir þekkja mig ekki einu sinni lengur á gömlu vínkránum mínum. Félagar mínir horfa hnuggnir á auða stólinn minn, þegar þeir safn- ast saman í gamla, glaðværa klúbbnum okkar, þurka af sér tár í laumi og tæma glasið sitt í botn í einum teig.“ Ég var að komast í reglulegan ham. Næst ætlaði ég að drepa lauslega á þá geysilegu fórn, er ég hefði fært, þegar ég giftist henríi, koma síðan að hinum mörgu hættum og freistingum, sem geta orðið á vegi ungra, fallegra, nýgiftra eiginkvenna, og þá mundi ég að lokum flytja þrumandi ræðu, almennara eðl- is, sem mundi koma út tárun- um á hinni harðsvíruðustu manneskju, en þá tók hún fram í fyrir mér. „Langar þig til þess að fá þér einn snaps?“ Ég hló, ef til vill lítið eitt bit- urlega. „Auðvitað langar mig í snaps. 43

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.