Bergmál - 01.12.1952, Page 49

Bergmál - 01.12.1952, Page 49
SPURNINGAR OG SYOR Viðkvæm einkamál: Helena svarar fyrir Bergmál: Bréf frá fatlaðri stúlku. Kæra Helena! Þegar ég var tveggja ára gömul, varð ég fyrir því óláni að hryggurinn í mér brotnaði er ég féll út um opinn glugga, og síðan hefi ég verið dálítið fötluð, þótt ekki sé það meira en svo, að enginn veit af því, þegar ég sit. Hendur mínar og fætur eru lýtalausir, vöxtur minn er talinn góður og ég þyki fremur lagleg í andliti. En þeg- ar ég stend upp, er ég lotin, og er ég geng koma óviðráðanlegar sveiflur á líkama minn og göngulagið er dratt- andi. Nú er ég orðin nítján ára og þrái það, að ungir menn veiti mér athygli, eins og ég býst við, að allar stúlkur á þessum aldri þrái, enn fremur þrái ég skemmtanalíf og þá jafnframt ein- hverja „rómantik". Eins og aðrar stúlkur, dreymir mig um að eignast heimili og börn. Ég veit, að það eru þúsundir stúlkna í heiminum fatlaðar. Hvað eigum við að gera? Eigum við að halda tilfinn- ingum okkar í skefjum? Ætti fötlunin óhjákvæmilega að gera okkur „öðru- vísi“, þrátt fyrir það, að tilfinningar okkar eru ófatlaðar? Ég hefi reynt að gera líf mitt auð- ugra með þvi að lesa bækur, skapa mér ný og ný áhugamál og vini. Ég er einnig í skóla, til að reyna að búa mig undir það, að geta bjargað mér sjálf í framtíðinni, en sú framtíð er í mínum augum mjög dapurleg. SVAR: Það er oftast erfitt fyrir þá, sem hafa átt því láni að fagna að halda fullri heilsu og óskertum líkamskröft um, að setja sig í spor þeirra, er að einhverju leyti eiga við vanheilsu að stríða. En ég þykist hafa veitt því at- hygli, að þeir sem á einhvern hátt eru vanheilir, eru yfirleitt trúaðri en hin- ir, sem heilir eru og veitist styrkur og andlegt öryggi með trú sinni. Þér þurf- ið að öðlast trú. Trausta og örugga trú. En þér þurfið jafnframt að gera yður það ljóst, að þúsundir og aftur þúsund- ir manna og kvenna, sem átt hafa við margfalt erfiðari líkamslýti að stríða, hafa öðlast hamingju og vel- gengni í lífinu, gifzt og eignast börn, falleg og góð heimili. Ég viðurkenni að þér eigið við erf- iðleika að stríða, en yður vaxa þeir of mjög í augum. Þér þurfið að útiloka þá, sem allra mest úr huga yðar. 47

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.