Bergmál - 01.12.1952, Page 51
Gísli mágur
Smásaga eftir F. B.
„Ég vona að það líði ekki yf-
ir þig, elskan,“ sagði Malla, með
sínum allra leiðinlegasta hun-
angsrómi, sem hún notar aðeins
þegar samvizkan er ekki í sem
beztu lagi, „ég bauð Gísla bróð-
ir mínum að koma og dvelja hjá
okkur eina viku úti í Hamra-
hlíð.“
Eiginmaður hennar lét dag-
blaðið síga hægt. Óteljandi ang-
istarhrukkur sáust á andliti
hans. Hann einblíndi á konu
sína.
„Gísla?“ endurtók hann spyrj-
andi, dapurlegri röddu.
„Já, Georg minn,“ sagði Malla
og saup hveljur.
„Æ, — hver andskotinn!“
sagði Georg. Hann starði sljó-
um augum fram undan sér og
setti sér fyrir hugskotssjónir all-
ar þær hrellingar, sem það hlyti
að hafa í för með sér, að hafa
Gísla á heimilinu í heila viku.
„Hvers vegna í ósköpunum
þurftirðu nú endilega að velja
brátt á sig hversdagslegri blæ. Hver
veit nema yður íinnist að nokkrum
tíma liðnum, að unnusti yðar sé ein-
mitt sá eini rétti maður fyrir yður. Því
að ef það er rétt, að þér séuð raun-
verulega að einhverju leyti hrifnar af
þessum unga manni, þá er ekki ó-
sennilegt að þér farið að elska hann
meira en yður er ljóst. En mér finnst
að þér ættuð alls ekki að giftast hon-
um fyrr en þér hafið að fullu gert yð-
ur ljóst, hvað það er í raun og veru,
sem þér teljið lífinu til gildis. Það
væri rangt af yður bæði gagnvart
sjálfri yður og þó fyrst og fremst
gagnvart honum.
Það er ekkert athugavert við það,
þótt þér keppið að-velgengni í lífinu,
það er að segja, auknu öryggi og auk-
inni ánægju, en látið yður aldrei til
hugar koma að slík verðmæti verði
einungis fundin hjá háskólagengnum
manni. Og það er alveg öruggt, að
háskólanám yðar skipar yður engan
veginn, út af fyrir sig, hærri sess í
þjóðfélaginu heldur en hinum ó-há-
skóla-gengna unnusta yðar. Slík hugs-
un er mjög fáfengileg.
49