Bergmál - 01.12.1952, Page 52
Bergmál ---------------------
Gísla úr öllum hinum gífurlega
hóp ættingja þinna?“
„Tja,“ sagði Malla vesældar-
legum rómi. „Hann talaði svo
mikið utan að þessu. Nú, og svo
var hann líka svo hjálplegur við
okkur í fyrra-sumar. Þú manst
víst að hann pasaði köttinn
okkar á meðan við vorum í
sumarfríinu ...“
Georg spilaði án afláts á
borðplötuna óstyrkum fingrum.
„Jæja, jæja, þar sem þú hefir
þegar boðið Gísla,“ andvarpaði
hann, „þá býst ég við að við
verðum að sætta okkur við það.
En hugsaðu þér nú bara, ef
bannsettur sláninn finnur upp
á því að fara að gerast hjálp-
legur?“
Malla setti upp totu. „Já, ekki
getur það nú talist löstur,“
maldaði hún í móinn. „Og víst
er hægt að hafa gagn af honum.
Hann er alltaf boðinn og búinn
til að rétta hjálparhönd við
hvaða starf sem £r.“
„Jú, jú, enginn þarf að ef-
ast um það,“ muldraði Georg.
„Þú manst víst hvernig það hef-
ir farið þegar hann hefir dval-
ið hér hjá okkur yfir helgar?
Ég hefi oftast verið orðinn eins
og utangátta fæðingarhálfviti
um það bil sem hann hefir farið
---------------- Desember
aftur. Eingöngu vegna hinnar
óhemju hjálpfýsi Gísla!“
Þetta voru sannarlega engar
ýkjur hjá Georg.
Þessi Gísli var með nefið niðri
í öllu. Það var sama hvað hjón-
in tóku sér fyrir hendur, alltaf
skyldi Gísli vera kominn þar
skælbrosandi og stimamjúkur
til að trana sér fram. „Blessuð,
lofið þið mér að gera eitthvað
til gagns,“ eða þá „get ég ekki
hjálpað?“ Og þetta fer alveg
með taugarnar í manni, þegar
til lengdar lætur. Maður verð-
ur eins og festur upp á þráð og
reynir öll hugsanleg undan-
brögð. Því að alltaf endar það
með ósköpum þegar svona menn
fara að „hjálpa til“. Það var seg-
in saga, að þegar Gísli hjálpaði
til við uppvaskið, þá fækkaði á-
valt um nokkur stykki úr kaffi-
stellinu, sem lágu í molum á
gólfinu að lokinni „hjálpinni“.
Ef honum var sagt að hann gæti
lúð garðinn, var það alveg ör-
uggt, að nýju græðlingarnir,
sem gróðursettir voru í vikunni
sem leið, urðu fyrir barðinu á
honum og eftir var aðeins öm-
urlegt moldarflag.
Ef einhverjum hefði dottið í
hug að þiggja aðstoð Gísla við
að brenna gamla sinu eða fúa-
rafta í skógarjaðrinum, hefði
50