Bergmál - 01.12.1952, Síða 53

Bergmál - 01.12.1952, Síða 53
1 952 --------------------------- hann áreiðanlega byrjað á því að ausa benzíni út um allt, kom- ið af stað skógareldi og senni- lega brennt húsin ofan af öll- um nábúunum. Þú ættir bara að reyna að biðja Gísla að taka hundinn þinn með sér í göngu- ferð og þú mátt vera handviss um, að þú sæir þann hund aldrei framar, Gísli myndi áreiðanlega týna honum fyrir fullt og allt. Auðvitað er sá möguleiki fyr- ir hendi að segja Gísla að setj- ast niður og taka sér bók í hönd, en láta aðra um sín störf, en það væri eins og stökkva vatni á gæs, Gísli tæki ekkert tillit til slíkrar beiðni. Hann var alltaf fyrirfram staðráðinn í að hjálpa. Var það nokkurt undrunar- efni, þótt Georg hrysi hugur við því, að fá slíkan mann í heim- sókn út í Hamrahlíð, þar sem þau hjónin höfðu ætlað að hvíla sig og hafa það notalegt í sum- arleyfinu. Georg hugkvæmdist það helzt að láta Gísla berja nokkrar strá- mottur sunnan við húsið, því að þá voru mjög miklar líkur til þess að hann myndi hverfa fram af hamrinum. En Georg vísaði þó þessari hugmynd á brott, því að Gísli greyið var þó mágur hans, og ekkert illmenni var hann, strák-bjálfinn. — 51 ------------------ Bergmál Ef til vill — hugsaði Georg — finn ég upp einhvern fjand- ann til að láta hann bjástra við, þegar þar að kemur. Til dæmis láta hann glíma við krossgátu eða jafnvel senda hann til að veiða silung í ánni. Það skipti ekki máli hvað það væri, bara ef hægt væri að koma honum úr augsýn og losna við þetta ei- lífa: „Blessaður láttu mig gera eitthvað til gagns.“ En auðvitað voru allir slíkir dagdraumar Georgs aðeins óskadraumar. Gísli birtist á tilskildum tíma úti í Hamrahlíð, með álíka á- huga fyrir því að reynast nú einu sinni verulega hjálpsamur, eins og væri hann orðinn heima- trúboðsmaður á yfirreið. „Þú gætir gert mér greiða,“ sagði Georg, „með því að veiða nokkra silunga í soðið fyrir mig.“ Sú veiðiferð fór þannig, að Gísli kom heim aftur að klukku- stund liðinni og hafði þá misst stöngina og færið í ána. Og svo, á öðrum degi, er Ge- org braut heilann um það, hvað hann ætti að gera til að geta lifað af vikuna, með þessa plágu í eftirdragi, þá kom honum ein- stakt snjallræði í hug — hrein- asta herbrella. „Ef þú jvilt verða veruleg L

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.