Bergmál - 01.12.1952, Blaðsíða 61

Bergmál - 01.12.1952, Blaðsíða 61
1952 Bergmál minntist þess, að í dag átti hún að leggja af stað í ferðalagið, nú átti von hennar um björgun að rætast, en óttinn hvarf er hún heyrði í þessu að klukka í húsinu sló tíu högg. Það voru því tvær klukku- stundir þangað til hún átti að mæta í skrifstofu herra Darlows, um hádegið. Hún reisti sig með erfiðismunum frá koddanum og sá þá sér til undrunar að hún var ennþá í kvöldkjólnum. Hún reyndi að rifja upp fyrir sér hvað gerzt hafði kvöldið áður í Speglasalnum, þótt allt virtist eins og í þoku. Til þess að tryggja það, að Orme yrði einskis var um það, hvað byggi í huga hennar, hafði hún tekið inn hvern skammtinn af öðr- um, af hvíta duftinu. Svo mundi hún ekki meira — einhver hlaut að hafa hjálpað henni til að komast heim — henni leið hræðilega illa. Hún hringdi bjöllunni og stuttu síðar kom hin skapstirða hús- móðir hennar með morgunteið hennar á bakka og dagblað. „Frú Agnew, ég mun verða fjarverandi í nokkrar vikur,“ sagði Binnie, „en ég vildi gjarnan fá að halda þessu herbergi. Gæti ég fengið að halda því, ef ég greiði leiguna fyrirfram?“ Konan hikaði. „Já, ég býst við því,“ sagði hún með tregðu, „og þó verð ég að segja yður það, að það væru ekki margar konur, sem mundu þola yður framferði yðar. Enda sagði ég dökkhærðu stúlkunni það, þeg- ar hún kom hingað heim með yður í gærmorgun.“ „í gærmorgun? Þér meinið víst,----í morgun!“ „Þér hafið tapað úr heilum degi, stúlka mín. Þér hafið legið hér eins og liðið lík í 30 klukkustundir fullar. Og ef þér viljið ekki trúa mér, þá ættuð þér að líta á dagsetninguna á þessu blaði.“ Konan sagði satt. Hún hafði glatað heilum sólarhring úr lífi sínu — og hún hafði jafnframt glatað hinu gullna tækifæri, — voninni um björgun. Darlow-feðginin mundu vera farin án hennar. Hún fékk staðfestingu á þeim grun stundu síðar er hún hringdi til skrifstofu herra Darlows í þeirri veiku von, að hann hefði beðið eftir henni. Örvæntingin greip Binnie heljartökum. Dýpri og sárari örvænt- ing en hún hafði nokkru sinni fundið til fyrr. — 59 — f
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bergmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.