Bergmál - 01.12.1952, Side 64

Bergmál - 01.12.1952, Side 64
Desember BergmAl bæði með líkama og sál? Og þá myndir þú þjást meira en nokkru sinni fyrr.“ Að baki hinum niðurbælda ofsa í rödd Vicky var slík óstjórnleg sálarangist, að Binnie brá. „Eg fer ekki heim til hans,“ hvíslaði hún. „Ég myndi fremur fremja sjálfsmorð.“ „Það er auðvelt að segja það. Ég hefi víst sjálf sagt það eins oft og ég hefi svarið það, að ég skyldi myrða Richard Orme.“ „Heldur þú í raun og veru, að þú gætir myrt hann?“ spurði Binn- ie áköf, í hálfum hljóðum. Vicky opnaði töskuna sína og- tók upp úr henni örlítið rúbínrautt hylki og hélt því upp að ljósinu, á milli þumal- og bendifingurs. „Ég stal þessu af þýzkum liðsforingja. Þetta er bráðdrepandi eit- ur, samskonar og sumir stríðsglæpamennirnir þýzku tóku inn.“ Hún hló kuldalega. „Ég hefi oft og mörgum sinnum fengið tæki- færi til að nota það, en alltaf brostið kjark. Hver sú stúlka, sem ætti skilið lárviðarkrans.“ Binnie titraði af geðshræringu og sneri sér frá þessu rauða hylki. Hún óttaðist sínar eigin hugsanir. „Vicky, gefðu mér aðeins einn einasta skammt —“. gæti fengið sig til að koma þessu í vínglasið hjá herra Orme, hún En dökkhærða stúlkan var þegar á leið út úr herberginu og litla, rauða hylkið lá eftir á snyrtiborðinu hjá Binnie. Hún tók það upp og starði á bað, eins og hún væri dáleidd. Hún vissi ekki hversu lengi hún sat þannig. Hún vissi hvorki í þennan heim né annan, fyrr en kallað var til hennar. Orme hafði sent eftir henni og gert henni boð um að mæta strax til starfs. Það næsta, sem Binnie veitti athygli, var það, að hún var komin upp í Salinn og farin að dansa við mann, sem spurði hana hvar hún væri í huganum. Þetta var hávaxinn, ungur maður, með dökkt, liðað hár og hraust- legri í útliti, en tíðkaðist meðal kvöldgesta á þessum stað. „Ég hefi aldrei komið hér fyrr,“ sagði hann. „Mér finnst, að við gætum vel orðið góðir kunningjar, svo að þér ættuð strax að venja yður við að kalla mig Philip. Hann vildi ekki heyra annað, en að hún snæddi með honum kvöldverð, og pantaði allt það bezta, sem

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.