Goðasteinn - 01.09.2005, Blaðsíða 116
Kirkjustarf 2004
Goðasteinn 2005
undirbúið komu hans af alúð og gestrisni og móttökur allar hjartanlegar. Hafði vígslu-
biskup orð á því hversu vel væri hugsað um kirkjurnar og kirkjugarðana og ljóst að hvar-
vetna leggði safnaðarfólk sig fram um að snyrtilegt væri um að líta á kirkjustöðunum og
viðhald kirknanna til fyrirmyndar.
Heimsóknir sem þessar eru vissulega af því góða, þær eru hvetjandi fyrir kirkjustarfið
og það kom glögglega fram að sóknarnefndarfólk var jákvætt með þetta fyrirkomulag og
þó vísitsían sé aðeins einn fundur með þeim nefndum þar sem ekki var sungin guðsþjón-
usta með kaffisamsæti á eftir, þá setti þetta fólk í tengsl við tilsjón biskupsembættisins í
Skálholti og undantekningalaust voru þessir fundir afslappaðir og ánægjulegir að öllu
leyti.
Annað starf á vegum prófastsdæmisins var í sínum fasta farvegi. Fermingarbarna-
mótið var haldið að Skógum í haust, tveggja daga ferð, jafn gefandi og skemmtilegt og
jafnan og markar upphafið að fermingarundirbúningi vetrarins hjá okkur prestunum með
væntanlegum fermingarbörnum.
Dagur eldri borgara
Dagur eldri borgara var haldinn hátíðlegur að venju á uppstigningadag sem bar upp á
20. maí sl. með guðsþjónustu í Asólfsskálakirkju og kaffisamsæti á Heimalandi á eftir.
Þar nutum við höfðinglegra veitinga og skemmtunar heimamanna í tónlist, söng og
töluðu máli og var glaðst á góðri stundu.
Eldri borgarar í kirkju
Eins hélt það samstarf okkar prestanna áfram við eldriborgarafélag sýslunnar að fá
öldunga sýslunnar í messuheimsóknir yfir vetrartímann. Taka félagsmenn sig þá saman
og koma gjarnan í rútu til guðsþjónustu og á eftir er kaffi drukkið og reynt er að hafa
„örlítið betra“ með messukaffinu, þó ekki svo að það skyggi á aðalhátíðina á upp-
stigningadag.
Kirkjublaðið
Kirkjublaðið er gefið út á prófastsdæmisvís og við hyggjum á áframhaldandi útgáfu
blaðsins með því sniði sem nú er komið á það, tvö tölublöð koma út á ári, aðalblaðið á
haustin þar sem greint er frá vetrarstarfinu og síðan páska- og fermingarblað fyrir
páskana.
Samráðsfundir presta
Við prestarnir reynum að hittast reglulega yfir vetrarmánuðina, að jafnaði einu sinni í
mánuði, til skrafs og ráðagerða okkar í millum. Það er okkur mikilvægt og á þennan hátt
eigum við saman góða umræðufundi þar sem margt ber á góma.
Þjóð gegn þunglyndi og Forvarnarráðstefna á Goðalandi
Mig langar að nefna sérstaklega ráðstefnu sem var haldin í Hvolsvelli nú í vor og
gekk undir heitinu Þjóð gegn þunglyndi. Þetta er átak sem Landlæknisembættið hefur
hrundið af stað og var þessi ráðstefna haldin í samstarfi við heilsugæsluna og var auk alls
starfsfólks heilsgæslunnar sérstaklega boðið prestum sýslunnar og fulltrúum skólanna hér
í sýslu að taka þátt í þessari ráðstefnu. Meginmarkmið þessarar stefnu var að koma þeim
skilaboðum áleiðis að þunglyndi er sjúkdómur sem mjög margir eru haldnir, og það sem
-114-